Þremenningar ætla að starfa eftir stefnu VG 15. apríl 2011 07:45 Þau Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason hafa eins og Ásmundur Einar Daðason sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna, en ætla að fylgja stefnu flokksins á þinginu. Fréttablaðið/Stefán
Þrír þingmenn sem gengið hafa úr þingflokki Vinstri grænna eru að íhuga að stofna nýjan þingflokk. Þau ætla að styðja ríkisstjórnina í málum sem eru í samræmi við stefnu Vinstri grænna. Lilja Mósesdóttir, einn þremenninganna, segir erfitt að vera óháður þingmaður vegna skipulagsins í þinginu. Óháðir þingmenn komi ekki að ákvarðanatöku um dagskrá og feril mála, og séu oft síðastir til að frétta af dagskrá þingsins. Lilja fundaði með Atla Gíslasyni og Ásmundi Einari Daðasyni um næstu skrefin í gær. Atli flaug af landi brott um miðjan dag í gær svo þau höfðu ekki tíma til að klára að ræða málið. Lilja segir ekkert liggja á, endanleg ákvörðun um stofnun þingflokks verði mögulega ekki tekin fyrr en eftir páska. Spurð um stefnu þessa nýja þingflokks segir Lilja: „Við munum styðja ríkisstjórnina í öllum þeim málum sem samrýmast stefnu Vinstri grænna. Það kom vel í ljós í atkvæðagreiðslu í þinginu í dag [í gær] að við fylgjum meirihlutanum í flestum málum.“ Hún segir deilurnar innan þingflokks Vinstri grænna hafa snúist um fjögur mál; Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðildarviðræður við Evrópusambandið, Icesave og fjárlagafrumvarpið. „Vissulega eru það stór mál, en þá þarf líka að semja um þau,“ segir Lilja. Hún segir að fari svo að þau stofni nýjan þingflokk muni hann eiga meiri samleið með stjórnarmeirihlutanum en stjórnarandstöðunni, enda muni þau starfa eftir stefnu Vinstri grænna. Þau séu hins vegar óbundin af hvers kyns málamiðlunum sem þingflokkur Vinstri grænna geri í stjórnarsamstarfi við Samfylkinguna. Spurð um eigin framtíð segist Lilja vera að skoða ýmsa möguleika. „Þá er ég ekkert frekar að tala um stofnun stjórnmálaflokks heldur en bandalag við annan flokk.“ Hún segist þó ekki ákveðin í að bjóða sig fram aftur í næstu þingkosningum. „Það hvarflar stundum að manni hvort ekki sé komið nóg, og ég er ekki sú eina á þingi sem hugsar það. Margir af núverandi þingmönnum munu hætta í næstu kosningum.“brjann@frettabladid.is
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira