Möguleikinn er til staðar á Kýpur Arnar Björnsson á Kýpur skrifar 26. mars 2011 09:00 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.
Það er ekki oft að tveir markverðir meiðast með fótboltalandsliðinu í sömu ferðinni en þegar ljóst varð á æfingu í gær að ökklinn á Ingvari Kale þyldi ekki álagið varð þjálfarinn að grípa til þess ráðs að hringja í fjórða markvörðinn. Valsmaðurinn Haraldur Björnsson kemur til Kýpur klukkan hálf þrjú í dag, nokkrum klukkutímum fyrir leik Íslands gegn Kýpur í undankeppni EM 2012. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hafði ákveðið fyrir nokkru að Stefán Logi Magnússon yrði í markinu í sínum 5. landsleik. Í gærmorgun meiddist sá sem staðið hafði í markinu í síðustu leikjum, Gunnleifur Gunnleifsson. Og á sama tíma varð ljóst að Kolbeinn Sigþórsson, sem hefur verið sjóðheitur með AZ Alkmaar í Hollandi, yrði ekki með vegna meiðsla. Áhersla á varnarleikinnÓlafur segist svekktur með að geta ekki nýtt Kolbein en hann, Heiðar Helguson, Alfreð Finnbogason og Gylfi Sigurðsson hafa verið að skora með liðum sínum að undanförnu. Það hefur ekki alltaf verið þannig þegar íslenska landsliðið hefur spilað að markaskorarar okkar hafi verið sjóðheitir daginn fyrir landsleik. Ólafur leggur áherslu á varnarleik íslenska liðsins á morgun. „Kýpurmenn eru góðir þegar þeir hafa boltann en þeir eru ekkert sérstaklega duglegir að verjast, þar þurfum við að nýta okkar tækifæri,“ sagði Ólafur en hann gerir sjö breytingar á liði sínu frá síðasta leik, gegn Portúgal í haust. Hermann Hreiðarsson er nú með á nýjan leik eftir meiðsli en þessi baráttujaxl heldur uppi móralnum í liðinu. Hann er orðinn 36 ára en þegar hann slæst við unglingana á milli æfinga er hann jafningi þeirra. Kraftur Hermanns og eldmóður heldur „unglingunum“ við efnið. Hermann segir að nú sé tími til kominn að fá stig í þessari keppni. „Möguleikinn er til staðar, ungu strákarnir vilja allir sanna sig og festa sig í sessi.“ Hermann, sem lék sinn fyrsta landsleik gegn Kýpur fyrir fimmtán árum, man vel eftir þeim leik. „Ég kom tvisvar þrisvar við boltann í leiknum, en við unnum,“ segir baráttujaxlinn, sem verður fyrirliði í 18. sinn í kvöld í sínum 87. landsleik. Völlurinn sem spilað verður á tekur um 23 þúsund áhorfendur en þeir verða vart fleiri en 3-5 þúsund á morgun. Þrátt fyrir góðan árangur í Portúgal, þegar Kýpur gerði 4-4 jafntefli við Ronaldo og alla hina snillingana, er landsliðið ekki í miklum metum hér á Kýpur. Meira líf er á vellinum þegar erkifjendurnir Omonia og Apoel mætast, þá er völlurinn fullur og fjölga þarf í lögregluliðinu. Kýpurmenn hafa nefnilega fengið sinn skammt af fótboltabullum. Gengið betur en ég þorði að vonaEn „strákarnir okkar“ mæta til leiks í kvöld með það að markmiði að vinna leikinn. Það markmið hefur reyndar nokkrum sinnum áður verið sett. Heiðar Helguson er vís til að skora þriðja mark sitt í keppninni og Gylfi Sigurðsson er draugfúll að fá ekki að spila meira með Hoffenheim, þrátt fyrir að skora næstum því alltaf þegar hann reimar á sig skóna. Á bekknum bíður Alfreð Finnbogason eftir tækifæri. „Mér hefur gengið miklu betur hjá Lokeren en ég þorði að vona. Þjálfarinn hefur trú á mér og ég finn fyrir miklum stuðningi frá stuðningsmönnum félagsins,“ sagði Alfreð. Leikur Kýpur og Íslands verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 18.00.
Tengdar fréttir Stefán Logi í markinu - byrjunarliðið klárt á móti Kýpur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kýpur í undankeppni EM á morgun, laugardaginn 26. mars. Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 25. mars 2011 14:12 Rúrik: Hermann geðbilaður í hausnum Stemningin hefur greinilega verið góð í herbúðum íslenska landsliðsins í knattspyrnu en það mætir í dag Kýpverjum ytra í undankeppni EM 2012. 26. mars 2011 13:30 Gunnleifur er meiddur í baki - óvíst með framhaldið á Kýpur Gunnleifur Gunnleifsson markvörður íslenska landsliðsins er meiddur í baki og óvíst hvort hann getur verið með á lokaæfingunni í kvöld. Ísland mætir Kýpur á morgun í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu en Ísland er án stiga í riðlinum eftir þrjá leiki en Kýpur er með eitt stig. 25. mars 2011 09:46 Eggert: Taflan lýgur ekki Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, segir það tímabært að liðið nái í sín fyrstu stig í undankeppni EM 2012. 26. mars 2011 10:00 Hemmi barði af sér fimm landsliðsfélaga Það þarf greinilega meira en fimm fílhrausta karlmenn til að yfirbuga landsliðsfyrirliðann Hermann Hreiðarsson. 25. mars 2011 15:42 Aron vill losna frá Coventry Aron Einar Gunnarsson segir að það sé greinilega eitthvað misjafnt á gangi í félagi hans, Coventry í Englandi, og að hann vilji losna frá félaginu miðað við núverandi stöðu. 26. mars 2011 07:00 Gylfi: Markmiðið alltaf að skora Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, segist alltaf stefna að því að skora í sínum leikjum - sama hver andstæðingurinn sé. 25. mars 2011 16:49 Haraldur kallaður til Kýpur Haraldur Björnsson, markvörður íslenska U-21 landsliðsins, hefur verið kallaður í A-landsliðið vegna meiðsla þeirra Gunnleifs Gunnleifssonar og Ingvars Þórs Kale. 25. mars 2011 16:41 Mest lesið Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Ndiaye til Manchester City Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sjá meira
Stefán Logi í markinu - byrjunarliðið klárt á móti Kýpur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kýpur í undankeppni EM á morgun, laugardaginn 26. mars. Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 25. mars 2011 14:12
Rúrik: Hermann geðbilaður í hausnum Stemningin hefur greinilega verið góð í herbúðum íslenska landsliðsins í knattspyrnu en það mætir í dag Kýpverjum ytra í undankeppni EM 2012. 26. mars 2011 13:30
Gunnleifur er meiddur í baki - óvíst með framhaldið á Kýpur Gunnleifur Gunnleifsson markvörður íslenska landsliðsins er meiddur í baki og óvíst hvort hann getur verið með á lokaæfingunni í kvöld. Ísland mætir Kýpur á morgun í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu en Ísland er án stiga í riðlinum eftir þrjá leiki en Kýpur er með eitt stig. 25. mars 2011 09:46
Eggert: Taflan lýgur ekki Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, segir það tímabært að liðið nái í sín fyrstu stig í undankeppni EM 2012. 26. mars 2011 10:00
Hemmi barði af sér fimm landsliðsfélaga Það þarf greinilega meira en fimm fílhrausta karlmenn til að yfirbuga landsliðsfyrirliðann Hermann Hreiðarsson. 25. mars 2011 15:42
Aron vill losna frá Coventry Aron Einar Gunnarsson segir að það sé greinilega eitthvað misjafnt á gangi í félagi hans, Coventry í Englandi, og að hann vilji losna frá félaginu miðað við núverandi stöðu. 26. mars 2011 07:00
Gylfi: Markmiðið alltaf að skora Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, segist alltaf stefna að því að skora í sínum leikjum - sama hver andstæðingurinn sé. 25. mars 2011 16:49
Haraldur kallaður til Kýpur Haraldur Björnsson, markvörður íslenska U-21 landsliðsins, hefur verið kallaður í A-landsliðið vegna meiðsla þeirra Gunnleifs Gunnleifssonar og Ingvars Þórs Kale. 25. mars 2011 16:41
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn