Seldur til 37 landa á níu dögum 14. mars 2011 13:00 „
Þetta er framar okkar björtustu vonum," segir Guðmundur Freyr Jónasson. Önnur útgáfa af Tunerific-gítarstilli þeirra Guðmundar Freys og Jóhanns P. Malmquist, prófessors, hefur verið seld til 37 landa á aðeins níu dögum. Forrit með nýju útgáfunni var í byrjun mars sett inn í OVI-netverslun finnska farsímafyrirtækisins Nokia fyrir nýjustu símana þeirra N8. Það hefur heldur betur slegið í gegn og náði það hæst í fjórða sæti lista yfir þau forrit sem voru vinsælust hjá fyrirtækinu. Búið er að þýða forritið yfir á sex tungumál og þýðing yfir á kínversku er einnig í undirbúningi. Tunerific er gagnvirkur gítar- og tónastillir. Einnig fylgir með hugbúnaðinum hljómabók með 336 hljómum. Forritið hefur alls verið selt til 77 landa og er að auki fáanlegt í 190 löndum. Guðmundur er hæstánægður með árangurinn til þessa. „Þetta er akkúrat það sem við vorum að vonast eftir. Þetta er glænýtt viðmót hannað af grafískum hönnuði. Það var ekkert til sparað í þessari útgáfu en við höfðum minni peninga á milli handanna í fyrstu útgáfunni," segir hann. „Við erum að reyna að beita nýjum markaðsaðferðum til að halda okkur sýnilegum í þessum stóra heimi forrita." Nokia hefur notað gítarstillinn í kynningarherferðum sínum að undanförnu, þar á meðal í Ísrael. Þar er tákni forritsins stillt upp við hliðina á risum á borð við Facebook og Youtube. Gítarstillirinn varð til úr meistaraverkefni Guðmundar Freys við Háskóla Íslands í samstarfi við leiðbeinanda hans, Jóhann P. Malmquist. Þeir reka nú saman sprotafyrirtækið Hugvakann, sem hefur það verkefni að sækja á fleiri markaði og þróa frekari forrit í farsíma. Til þess hafa styrkir frá tækniþróunarsjóði Rannís komið að góðum notum. -fb Hér fyrir ofan má sjá kynningarmyndband sem gert var fyrir fyrri útgáfu Tunerific.
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Fleiri fréttir „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Sjá meira