Réttur til að njóta náttúrunnar 4. júlí 2011 03:30 A-nefnd stjórnlagaráðs leggur til að stjórnvöld geti sett á auðlindagjald og að leyfi til nýtingar leiði ekki til eignarréttar.fréttablaðið/gva
A-nefnd stjórnlagaráðs hefur lagt fram þrjár tillögur um náttúru Íslands og umhverfi til afgreiðslu í áfangaskjal ráðsins. Hnykkt hefur verið á rétti almennings til að njóta náttúrunnar. Í tillögunum er kveðið á um að auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, skuli vera sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn geti fengið þær eða réttindi tengd þeim til eignar eða varanlegra afnota. Stjórnvöld beri, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Við nýtingu auðlindanna skuli hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Tillögurnar gera ráð fyrir því að stjórnvöld geti á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda gegn fullu gjaldi og til hóflegs tíma í senn. Slík leyfi leiði hins vegar aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum. Verði tillögurnar að veruleika verður öllum tryggður réttur á heilnæmu umhverfi, fersku vatni, ómenguðu andrúmslofti og óspilltri náttúru. Í því felist að fjölbreytni lífs og lands sé viðhaldið og náttúruminjar, ósnortin víðerni, gróður og jarðvegur njóti verndar. Í samræmi við Árósasamninginn er jafnframt lagt til að tryggja skuli almenningi aðgang að undirbúningi ákvarðana sem hafa áhrif á umhverfi og náttúru og aðild að málum þeim tengdum.- kóp
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Sjá meira