Nóbelshafi sakar ráðamenn um óheilindi 4. mars 2011 05:00 Junus kemur úr réttarsal. nordicphotos/AFP
Muhammed Junus, Nóbelsverðlaunahafi og bankastjóri í Bangladess, hefur mótmælt því harðlega að stjórnvöld í Bangladess ætli að reka hann úr starfi sínu sem bankastjóri Grameen-bankans. Junus, og bankinn sem hann stofnaði, hefur notið mikillar virðingar fyrir að útvega fátæku fólki lánsfé til að koma undir sig fótunum. Nú í vetur komu hins vegar fram ásakanir í norskum sjónvarpsþætti um að bankinn stundaði okurlánastarfsemi og gengi hart að fólki sem ekki getur staðið í skilum. Junus segir að Sheikh Hasina, forsætisráðherra í Bangladess, noti þetta sem átyllu til að bola sér úr embætti, en í raun hafi hún horn í síðu hans vegna þess að hann hafi árið 2007 kynnt áform um að stofna stjórnmálaflokk, með tilstyrk hers landsins. Junus sagðist sjálfur vilja hætta og gefa öðrum kost á að taka við stjórn bankans, en hann vildi þó ekki hætta við þessar aðstæður. „Ef ég hætti vegna ills umtals missir fólk trú á Grameen-bankanum. Það vil ég ekki að gerist,“ sagði hann eftir að hafa fært rök fyrir máli sínu fyrir dómi í gær. - gb
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Innlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira