Kona fær dvalarleyfi þrátt fyrir synjun Útlendingastofnunar Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. mars 2011 10:45 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í morgun.
Héraðsdómur hefur fellt úr gildi úrskurð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins frá 14. desember 2009 um að synja konu um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess að hún hafði stofnað til málamyndahjúskapar með íslenskum karlmanni. Með úrskurði sínum hafði ráðuneytið staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar. Helstu röksemdir Útlendingastofnunar fyrir því að ætla að hjúskapurinn hafi verið til málamynda voru þær að mikill aldursmunur er á fólkinu, að til hjúskaparins hafi verið stofnað eftir stutt kynni hjónanna og að sannað sé að hjónin búi ekki saman á heimili maka stefnanda, eins og hann hafi haldið fram við lögreglu og tekið hafi verið fram í umsókn stefnanda um dvalarleyfi. Lögreglan fylgdist með ferðum við heimili mannsins, meðal annars yfir jólahátíðina 2008, og fram kemur í úrskurði héraðsdóms að aldrei hafi sést til ferða konunnar í eða við heimili makans. Þá spurðist lögregla fyrir hjá nágrönnum og vinum makans en engir þeirra hefðu séð konuna. Í dómnum kom hins vegar einnig fram að maðurinn, sem konan stofnaði til hjúskapar með, væri mikið fjarverandi vegna vinnu og það hefði takmarkað hversu oft þau gætu hist. Þá sé konan jafnframt kaþólsk og að í heimalandi hennar sé ekki siður að fólk búi saman áður en það giftir sig. Héraðsdómur kemst því að þeirri niðurstöðu að ályktanir, sem dregnar voru í úrskurði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um búsetu konunnar og maka hennar og að þau hefðu ekki reglulegt samneyti hvort við annað hafi alls ekki verið byggðar á nægilega traustum gögnum þegar tekin var sú afdrifaríka ákvörðun með úrskurðinum að staðfesta ákvörðun ráðuneytisins um að synja konunnar um dvalarleyfi.
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Erlent Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Erlent Fleiri fréttir Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Sjá meira