Bakarí mátti ekki dreifa myndbandi af ungum drengjum Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. mars 2011 16:34 GSM sími.
Bæjarbakarí í Hafnarfirði braut gegn persónuverndalögum það birti á vefnum YouTube myndskeið sem talið var sýna ungan dreng taka farsíma ófrjálsri hendi. Þetta er niðurstaða Persónuverndar sem birti úrskurð sinn í dag. Faðir tveggja drengja, sem eru undir 10 ára aldri, kvartaði til Persónuverndar vegna birtingar á myndbandi úr öryggismyndavél Bæjarbakarís á Netinu. Á umræddu myndbandi virtist annar drengjanna taka farsíma af borði ófrjálsri hendi. Í kvörtuninni segir meðal annars að samkvæmt lögum sé óheimilt að birta öryggis-upptökuefni á veraldarvefnum ef glæpur hefur verið framin. Eingöngu lögreglan hafi leyfi til að birta og nota efni sem tekið hefur verið upp í rannsóknarskyni. Forsvarsmaður Bæjarbakarís kvaðst hafa staðið í þeirri trú að það væri leyfilegt að setja myndskeiðið á Neitð. Um það bil tveimur klukkustundum eftir að myndbandið fór á vefinn, hafi umboðsmaður barna sett sig í samband við umræddan aðila og bent honum á að slík myndbirting væri ekki æskileg. Rekstrarstjóri bakarísins hafi brugðist við þeirri athugasemd með því að fjarlægja myndbandið tafarlaust af vefnum. Ekki hafi verið um að ræða ásetning af hálfu rekstrarstjóra bakarísins einungis vanþekkingu á gildandi lögum. Í úrskurði Persónuverndar kemur fram að í tilfelli sem þessu kunni að vera að brotið hafi verið á friðhelgi einstaklinga. Drengirnir hafi verið ósakhæfir og undir fimmtán ára aldir. „Við vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga um svo unga einstaklinga ber að sýna sérstaka varúð og hafa í huga að börn eru hópur sem þarfnast sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu,“ segir í úrskurðinum.
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Sigríður fannst heil á húfi Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Sjá meira