Byggja upp ódýrt húsnæði fyrir ungt fólk og tekjulága 15. ágúst 2011 12:05 Mynd úr safni
Sérstök áhersla er lögð á að byggja upp ódýrt húsnæði fyrir ungt fólk og tekjulága hópa, samkvæmt stefnumótun vinnuhóps um húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar. Markmiðið er að efla leigumarkaðinn í borginni þannig að allir borgarbúar eigi kost á öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði. Vinnuhópur um húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2020 skilaði af sér tillögum til borgarráðs í byrjun júlí. Tillögurnar eru nú í umsagnarferli en frestur til að skila inn umsögnum rennur út í vikulok. Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar er formaður starfshópsins. Hún segir brýna þörf á að efla leigumarkaðinn í borginni. Í skýrslu hópsins er lagt til að félagasamtök og húsnæðissamvinnufélög sem bjóða ungu fólki og tekjulágum upp á leiguíbúðir og búseturéttaríbúðir á viðráðanlegum kjörum, fái forgang á úthlutun lóða, að uppfylltum skilyrðum Reykjavíkurborgar. Mat starfshópsins er að mest þörf sé á ódýrara húsnæði fyrir þessa hópa og því lagt til að úthlutanir á lóðum í nánustu framtíð taki mið af því. Þá er hvatt til þess að Reykjavíkurborg hafi forystu í að endurskoða og samræma reglur um sérstakar húsaleigubætur, í samvinnu við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, í því skyni að létta greiðslubyrði til tekjulágs fólks sem jafnframt á í félagslegum vanda. Samkvæmt nýjum reglum verði stuðningur óháður því hver á eða rekur húsnæði, heldur fari hann eftir aðstæðum og greiðslubyrði hvers leigjanda. Vinnuhópurinn mælist ennfremur til þess að Félagsbústaðir reki áfram húsæði fyrir þá sem ekki geta leigt á almennum markaði, þrátt fyrir sérstakan stuðning. Þá verði kannaður sá möguleiki að Félagsbústaðir sinni félagslegu húsnæði á öllu höfuðborgarsvæðinu Meðal þeirra sem skila umsögn um tillögurnar eru Neytendasamtökin, Félagsstofnun stúdenta og Öryrkjabandalagið. Almenningi er einnig frjálst að senda inn umsagnir. Skýrsluna má nálgast á vef Reykjavíkurborgar
Mest lesið Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Innlent Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Innlent Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Söguleg óvissa á fasteignamarkaði og meðvirk gervigreind Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar mun hærri en landsmeðaltalið Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Breytingar sem litlu breyta og mokstursmenn þakka veðurguðunum Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Borgin tekur út framkvæmdir við Vesturbæjarlaug Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Tilkynnt um bíl fullan af flugeldum Valhöll auglýst til sölu Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Mannekla hafi mikil áhrif á fangaverði Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Íhugar ekki stöðu sína Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Langt í frá að málinu sé lokið Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Sjá meira