Erfitt að tilkynna vini og nágranna fyrir illa meðferð á dýrum 16. ágúst 2011 14:30 Ein birtingarmynd slæmrar meðferðar er vanræksla en tilkynnt hefur verið um fólk sem skilur hundana sína eftir eina í lengri tíma Mynd úr safni AFP
Algengast er að tilkynningar um slæma meðferð á dýrum varði fólk sem á við félagsleg vandamál að etja. Dæmi eru um að fólk berji og sparki í gæludýrin sín, jafnvel í þeirri trú að það sé að þjálfa þau. Margrét Björk Sigurðardóttir frá Dýraverndunarsambandinu var gestur þáttarins Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi um slæma meðferð á dýrum. „Þetta er náttúrulega falið vandamál, af því að, eins og hjá gæludýrunum, þá er þetta inni á heimilum fólks, þetta eru oft nágrannar og vinir, þetta eru viðkvæm mál og það er erfitt að taka á þessum málum og maður veit að fólk er feimið við að láta vita," segir hún. Ein birtingarmynd slæmrar meðferðar er vanræksla en tilkynnt hefur verið um fólk sem skilur hundana sína eftir eina í lengri tíma, jafnvel heilu helgarnar á meðan eigendurnir fara í utanlandsferð. Þá segir Margrét Björk að dæmi séu um að fólk virðist standa í þeirri trú að það sé að þjálfa eða temja dýrin þegar það er í raun að fara illa með þau. Alvarlegustu tilvikin þegar kemur að illri meðferð, vanrækslu dýra og ofbeldi, varða fólk sem vegna eigin vandamála er óhæft til að sjá um dýr. „Það sem er algengast, því miður, er þar sem við sjáum að það eru jafnvel önnur félagsleg vandamál, og þar er ástandið oft verst, og þar skiptir rosalega miklu máli að grípa inn í því það getur verið ljóst að fólkið hefur ekki burði til að gera það sjálft," segir Margrét Björk Dýraverndunarsambandið fær minnst eina tilkynningu á viku um mjög slæma meðferð á dýrum. Úrræði yfirvalda til að grípa inn í eru af skornum skammti. „Þau hafa samt úrræði í lögum að þau geta farið inn og þau mega taka dýr, þau mega svipta fólk heimild til að halda dýr, en ég veit ekki til þess að þessu hafi nokkurn tíman verið beitt," segir hún. Margrét Björk segir allt of fá mál fara alla leið fyrir dómstólum. „Og dómar hafa yfirleitt verið vægir og dómarar hafa til dæmis aldrei svipt manneskju leyfi til að halda dýr, jafnvel þrátt fyrir ítrekuð brot," segir hún.Hægt er að hlusta á viðtalið Í bítinu í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að ofan.
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira