Ósammála um hvort loka þarf leikskóladeildum 16. ágúst 2011 13:19 Verkfallið mun hafa áhrif á 14 þúsund fjölskyldur Mynd úr safni / Vilhelm
Lögfræðingur Kennarasambands Íslands, sem Félag leikskólakennara heyrir undir, er ósammála þeirri túlkun forsvarsmanna Sambands íslenskra sveitarfélaga að leikskóladeildir geti starfað áfram ef deildarstjórinn er í verkfalli. „Lögfræðingur okkar túlkar þetta á annan hátt og það er sú túlkun sem við munum fara eftir," segir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Í hádegisfréttum RÚV var greint frá því að Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs sambandsins, segi það mat sambandsins að leikskólastjórum skuli sjá til þess að allar deildir séu starfandi á meðan verkfalli stendur, og nýta til þess það starfsfólk sem ekki er í verkfalli. Að mati sambandsins geta leikskólastjórnendur fært starfsfólk á milli deilda með það að markmiði að halda sem flestum deildum opnum. Þessu er lögfræðingur Kennarasambandsins ósammála. Haraldur segir í samtali við fréttastofu að hans fólk setjist á fund með lögfræðingnum nú klukkan tvö þar sem farið verði yfir stöðuna. Fyrir liggur að einhverjar leikskóladeildir halda áfram að starfa þrátt fyrir verkfall, sama hvaða túlkun er miðað við, þar sem ófaglærðir starfsmenn leikskóla sem ekki eru í Félagi leikskólakennara munu áfram mæta til vinnu. Þá heyra stjórnendur á leikskólum ekki undir félagið heldur eru þeir í Félagi stjórnenda í leikskólum.
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira