Járnsmiður, silfurrani og tungljurt nema land 29. júlí 2011 05:30 Gróskumikið graslendi hefur myndast á suðurhluta Surtseyjar og baldursbráin er áberandi. Mynd/Borgþór Magnússon
Nokkrar nýjar tegundir fundust í árlegri ferð vísindamanna til Surtseyjar. Tanginn norðan á eyjunni hefur minnkað um 100 metra á einu ári, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Meðal nýrra landnema sem biðu vísindamannanna í Surtsey þetta árið var tungljurt, sem er smávaxin burknategund. Hún er sjötugasta tegund háplantna sem nemur land á eynni. Gróskumikið graslendi hefur myndast á suðurhluta Surtseyjar. Í ferðinni fundust einnig í fyrsta skipti bjöllutegundirnar járnsmiður og silfurrani. Talið er að ellefu tegundir fugla hafi verpt í eynni þetta árið, en fýll, svartbakur, sílamáfur og silfurmáfur voru algengustu tegundirnar á eyjunni. Surtsey sjálf hefur verið að minnka að flatarmáli undanfarin ár þar sem sjórinn brýtur niður sandstrendurnar. Borgþór Magnússon, leiðangursstjóri í ferðinni, segir að Surtsey hafi verið um 2,7 ferkílómetrar að flatarmáli eftir gos, en sé nú um 1,3 ferkílómetrar. Borgþór segir ekki talið að Surtsey sökkvi í sæ í bráð, enda harður móbergskjarni sem mun væntanlega standa þótt annað eyðist utan af henni. Nú má sjá hraunjaðarinn í flæðarmálinu, en upprunalega var jaðarinn um 500 metra frá vesturströndinni. - bj
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Fleiri fréttir Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Sjá meira