Segir það stjórnvalda að leggja línuna 22. ágúst 2011 07:47 Björn Zoëga.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, treystir sér ekki til að tiltaka hvaða þjónustu gæti reynst nauðsynlegt að fella niður komi til frekari niðurskurðar á spítalanum. „Við erum að skoða þessi mál og það er ekki tímabært að segja hvað það verður sem víkur. Um sumt þarf að hafa samráð við ráðuneytið sem skipuleggur heildarþjónustuna og hvort það séu einhver sérstök atriði sem það leggur áherslu á að við leggjum niður frekar en eitthvað annað. Þessi umræða er ekki komin svo langt." Í síðustu viku sagði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra að erfitt væri að sneiða framhjá LSH við niðurskurð í ríkisfjármálum, enda tæki spítalinn það stóra sneið af framlögum til heilbrigðismála. Björn sagði fréttirnar vera áfall og að ekki yrði hagrætt lengur heldur yrði einhver þjónusta að leggjast af. Í viðtali við Fréttablaðið í nóvember í fyrra sagði Björn að kæmi til frekar niðurskurðar, sem nú er boðaður, yrði reynt að viðhalda bráðastarfsemi en minnka annað. „Birtingarmynd þess yrði óendanlegir biðlistar og fólk fengi ekki þjónustu svo mánuðum skiptir," sagði Björn í nóvember. Nú er krafa á velferðarráðuneytið um 1,5 prósenta niðurskurð. Frá hruni hefur þegar verið skorið niður um 23 prósent á LSH. Starfsmenn spítalans voru 5.218 í janúarlok 2009. Í lok maí í ár voru þeir 4.627. - shá
Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent Fleiri fréttir Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Sjá meira