Segir hrun blasa við í tónlistarkennslu 1. febrúar 2011 12:30 Sigrún Grendal Formaður Félags tónlistarskólakennara.fréttablaðið/anton
Reykjavíkurborg hefur boðað allt að átján prósenta niðurskurð á fjárveitingum til tónlistarskóla á komandi skólaári. Viðræður ríkis og borgaryfirvalda standa þó yfir og segir formaður menntaráðs Reykjavíkur að hún sé bjartsýn á að ná niðurskurðartölunni niður í ellefu prósent. Niðurskurðurinn er boðaður ofan á gildandi þjónustusamninga borgarinnar og tónlistarskólanna og segir Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara, að í þeim samningum sé kveðið á um að skólarnir skuli veita tilteknum fjölda nemenda þjónustu út núverandi skólaár. „Skilaboðin til skólanna eru þau að ef þeir eigi að halda sig innan ramma fjárheimilda þurfi þeir að framkvæma yfir fimmtíu prósenta niðurskurð á næsta hausti," segir Sigrún. „Og leggst það ofan á tuttugu prósenta niðurskurð frá árunum 2008 til 2010." Sigrún bendir einnig á að næsta haust eigi líklega að fella niður fjárframlög til nemenda sem hafi náð sextánda aldursári. „Þar með er verið að ganga algjörlega gegn eðli og uppbyggingu tónlistarfræðslu," segir hún. „Borgin hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þessu kerfi, þar sem nemendur sem eru lengst komnir í námi í tónlistarskólum af landinu öllu hafa sótt til Reykjavíkur til að sækja sér menntun á efri stigum. Nái þessar áætlanir fram að ganga blasir við hrun á kerfinu.“ Oddný Sturludóttir Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkur, segir margar villandi tölur vera í umferð og þær beri að skoða með hliðsjón af viðræðum sveitarfélaga við ríkið um framtíðarfyrirkomulag tónlistarnáms þeirra sem eldri eru og sé þá gjarnan miðað við sextán ára aldurinn. „Við erum að móta stefnu til framtíðar og í ágúst samþykktu allir flokkar að börn og ungmenni yrðu þar í forgangi," segir Oddný. „Síðan yrðu settar einhvers konar aldurstakmarkanir haustið 2011. En það kemur ekki til greina að fella niður fjárveitingar til allra sem eru eldri en sextán ára." Oddný segir menntaráð hafa fundað reglulega með fulltrúum skólastjóra og kennara tónlistarskóla við mótun stefnunnar. Einnig sé verið að vinna í því að finna farsæla lausn til framtíðar í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hún segir viðræður vera að taka á sig mjög jákvæða mynd og munu sennilega vera þeim tónlistarnemendum sem eldri eru til framdráttar. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira