Frosti á X-inu: Ég veit það manna best að þetta var ekki sviðsett 1. nóvember 2011 21:27 Frosti Logason er útvarpsmaður í þættinum Harmageddon á X-inu 9.77. Mynd/Anton Brink „
Ég er líklega sá sem veit það manna best að þetta var ekki sviðsett því það var ég sem boðaði þá í þáttinn. Þeir höfðu ekkert samráð sín á milli," segir Frosti Logason, útvarpsmaður í þættinum Harmageddon á X-inu 977. Lögreglan telur að árás rapparans Móra á Erp Eyvindarson í höfuðstöðvum X-ins í Skaftahlíðinni á síðasta ári hafi verið sviðsett en meðal annars kom hnífur og rafbyssa við sögu. Erpur kærði árásina til lögreglu en eftir stuttlega rannsókn var málið látið niður falla á þeim forsendum að lögreglan taldi árásina vera sviðsetta. Lögmaður Erps var ekki sáttur við þá niðurstöðu og kærði hana til ríkissaksóknara sem er ósammála þeim rökum og vill frekari rannsókn. Frosti furðar sig á vinnubrögðum lögreglunnar í málinu. „Ég er mjög hissa, það er fáránlegt að leyfa sér að fullyrða þetta," segir hann en tekin var skýrsla af honum eftir atvikið. „Lögreglan talaði við mig og ég fór og gaf skýrslu og allt. En eftir á að hyggja, þegar ég sé þetta núna frá þeim, þá fannst mér lögreglumaðurinn sem tók af mér skýrsluna taka frekar léttúðlega á þessu og slá á létta strengi. Þetta var alveg fáránlegt frá upphafi til enda," segir hann en á meðal þess sem ríkissaksóknari fer fram á er að teknar verði ítarlegri skýrslur af Erpi og vitnum í málinu, þar á meðal Frosta. „Þetta er alvarlegt mál. Ef fólk lendir í hnífaárásum á það þá von á því að lögreglan leyfi sér að alhæfa eitthvað svona bull? Hún tekur greinilega ekki mark á þeim vitnum sem hún talaði við. Þetta er bara út í hött," segir hann og bendir á að það sé fyrir öllu að enginn slasaðist í árásinni. „Á meðan þessu stóð var þetta þvílíkt ástand og þetta er háalvarlegt," segir hann að lokum. Nánar verður rætt um málið í þættinum hjá þeim á morgun sem hefst klukkan 15 á X-inu 977.
Tengdar fréttir Löggan segir rappstríðið sviðsett - ríkissaksóknari ósammála Lögregla telur að árás rapparans Móra á Erp Eyvindarson á síðasta ári hafi verið sviðsett en meðal annars kom hnífur og rafbyssa við sögu. Ríkissaksóknari er þessu ósammála og vill frekari rannsókn. 1. nóvember 2011 19:30 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira
Löggan segir rappstríðið sviðsett - ríkissaksóknari ósammála Lögregla telur að árás rapparans Móra á Erp Eyvindarson á síðasta ári hafi verið sviðsett en meðal annars kom hnífur og rafbyssa við sögu. Ríkissaksóknari er þessu ósammála og vill frekari rannsókn. 1. nóvember 2011 19:30