Spara má mikið fé hjá ferðaþjónustu fatlaðra 19. september 2011 05:00 Alls voru farnar 325.224 ferðir á vegum sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu með fatlaða í fyrra. Starfshópur leggur til að sveitarfélögin sameinist um útboð á þjónustunni. Fréttablaðið/Anton
Framkvæmdahópur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu leggur til að sveitarfélögin nýti hagkvæmni stærðarinnar og sameinist í útboði á ferðaþjónustu við fatlaða. „Þegar fyrirliggjandi gögn eru skoðuð vekur athygli að meðalkostnaður á ferð er nokkuð mismunandi milli minni sveitarfélaganna og langhæstur hjá Reykjavíkurborg og Álftanesi,“ segir í niðurstöðum starfshópsins. Meðalkostnaður á hverja ferð í Reykjavík sé 2.111 krónur og 2.300 krónur á Álftanesi. Meðalkostnaður hinna sveitarfélaganna sé hins vegar 1.639 krónur á ferð. „Væri kostnaður borgarinnar í takt við meðalkostnað hinna sveitarfélaganna þá myndu sparast rúmar 85 milljónir á ársgrundvelli. Væri kostnaður borgarinnar sambærilegur og í nýlegu útboði Kópavogs þá yrði sparnaðurinn 116 milljónir,“ bendir framkvæmdahópurinn á og bendir á að öll sveitarfélögin nema Kópavogur séu nú með lausa samninga um þessa þjónustu. Í Kópavogi er meðalverðið á ferð 1.588 krónur og í Hafnarfirði er verðið enn lægra, 1.524 krónur. Framkvæmdahópurinn leggur til að haldið verði sameiginlegt útboð í síðasta lagi í nóvember næstkomandi. Forsendur verði meðal annars að þjónustan verði ekki lakari en í dag og að fulltrúar hagsmunaðila séu ekki ósáttir við þá lausn sem finnst. Þá hvetur hópurinn til að skoðað verði hvernig fatlaðir geti í ríkari mæli nýtt sér almenningssamgöngur. Skoðun framkvæmdahópsins náði ekki til ferðaþjónustu við grunnskólanema. Í sveitarfélögunum sjö eigi 1.535 einstaklingar rétt á þjónustunni sem til athugunar var. Í fyrra voru farnar samtals 325.224 ferðir með fólk úr þessum hópi. Niðurstöður framkvæmdahópsins hafa nú verið sendar bæjarráðum sveitarfélaganna sem enn eru með málið til skoðunar. Aðeins bæjarráð Álftaness hefur nú þegar lýst áhuga á frekari samvinnu og útboði í samræmi við niðurstöðu starfshópsins. gar@frettabladid.is
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira