Leyfi fengið til stækkunar Reykjanesvirkjunar 15. september 2011 18:34
Virkjunarleyfi vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar, sem tekist hefur verið á um í tvö ár, var gefið út nú síðdegis. Ein stærsta hindrun í vegi álversframkvæmda í Helguvík er þar með úr sögunni. Stækkun Reykjanesvirkjunar átti að vera fyrsti þátturinn í orkuöflun vegna álversins í Helguvík en tvö ár eru frá því HS Orka sótti um leyfið. Ágreiningur milli vísindamanna Orkustofnunar og HS Orku um orkugetu jarðhitasvæðisins á Reykjanesi hefur hins vegar tafið leyfisveitingu og í drögum að virkjunarleyfi, sem Orkustofnun kynnti fyrir ári, voru sett margvísleg skilyrði sem HS Orka sætti sig ekki við. Aðilar hafa síðan tekist á um útfærslu skilyrðinna þar til fyrir nokkrum dögum að niðurstaða fékkst sem leiddi til þess að Orkustofnun gaf út leyfisbréf nú síðdegis. Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, fagnar leyfisveitingunni enda sé hún ein mikilvægasta forsenda þess að stórframkvæmdir geti hafist á Suðurnesjum. Hann segir þó að skilyrði Orkustofnunar muni líklega leiða til þess að virkjunin verði eitthvað dýrari en upphaflega var gert ráð fyrir en treystir sér ekki til að nefna tölur í því sambandi. Útgáfa leyfisins í dag táknar ekki að framkvæmdir hefjist því Ásgeir segir að beðið verði niðurstöðu sænsks gerðardóms í ágreiningsmáli HS Orku og Norðuráls. Búist hafði verið við úrskurðinum í lok september en gerðardómurinn hefur nú tilkynnt málsaðilum að úrskurðurinn frestist fram í lok október. Vegna virkjunarleyfisins sendi HS Orka frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu nú í kvöld: „Í dag, 15. september 2011, afhenti Orkustofnun HS Orku hf virkjunarleyfi vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar í 180 MW. HS Orka sótti fyrir tæpum tveimur árum um virkjunarleyfi fyrir 50 MW gufuhverfli sem er sömu gerðar og þeir tveir sem fyrir eru og 30 MW vegna hverfils sem myndi auka nýtingu þeirrar orku betur sem þegar er tekin úr jarðhitageyminum. Það leyfi sem nú var gefið út heimilar fulla nýtingu 30 MW hverfilsins en takmarkar meðal heildarnýtingu hinna þriggja 50 MW hverfla við samtals 140 MW. Orkustofnun miðar þetta við orkuupptekt úr sérstöku miðsvæði sem stofnunin hefur skilgreint en finnist nýtanleg orka utan þessa miðsvæðis má nýta hana til þess að auka nýtinguna uns fullri nýtingu (150 MW) er náð. Auk þessara takmarkana eru í leyfinu ýmis ákvæði m.a. um aukna niðurdælingu og endurskoðun nýtingar að 5 árum liðnum í ljósi m.a. orkuöflunar utan miðsvæðis. HS Orka vinnur áfram að framgangi orkusölusamninga í tengslum við stækkun Reykjanesvirkjunar, m.a. við Norðurál Helguvík sf. Í haust er að vænta niðurstöðu gerðardóms vegna ágreinings HS Orku og Norðuráls um orkusölu. Megináhersla HS Orku til stækkunar Reykjanesvirkjunar er nú að vinna að fjármögnun verkefnisins og tryggja orkusölu og er þess vænst að þeir áfangar náist á næstu mánuðum."
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira