Kæra Sjálfstæðisflokksins uppfyllti ekki skilyrði um opinbera rannsókn 12. ágúst 2011 17:49 Mynd/Pjetur
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur ítrekað gefið Sjálfstæðisflokkinum kost á því að bæta úr annmörkum kæru sinnar , en úr þeim hefur enn ekki verið bætt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Ríkislögreglustjóri gaf út í kjölfar ummæla lögmanns flokksins í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. Rætt var við Grétar Hannesson, lögfræðing Sjálfstæðisflokksins, í fréttatímanum, þar sem hann gagnrýndi kröfur efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra um að flokkurinn leggðist í frekari vinnu við kæru sína á hendur manni sem grunaður er um að hafa dregið sér fé af reikningi íhaldshóps Norðurlandaráðs á Íslandi . Grétar taldi að efnahagsbrotadeildinni hefði borist öll þau gögn sem þyrfti til að geta tekið við rannsókn málsins og sagðist hafa áhyggjur af því að auknar kröfur efnahagsbrotadeildarinnar um rannsóknarvinnu kærenda gætu fælt fólk frá því að kæra mál. Ríkislögreglustjóri segir í fréttatilkynningu sinni að kæra Sjálfstæðisflokksins hafi verið annmörkum háð og hafi ekki uppfyllt skilyrði um opinbera rannsókn. Flokkinum hefði ítrekað verið gefinn kostur á því að bæta úr annmörkum kærunnar, en mikil bókhaldsgögn hafi fylgt henni. Samkvæ mt tilkynningu Ríkislögreglustjóra óskaði efnahagsbrotadeild nánar til tekið eftir svörum við ákveðnum staðhæfingum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði haldið fram í kæru sinni, en samrýmdust ekki gögnum málsins. Í fréttatíma Ríkisútvarpsins kom einnig fram að maðurinn sem sakaður er um fjárdráttinn hafi játað á sig verknaðinn, en það var ítrekað í tilkynningunni að yfirlýsingar um játningar væru ekki frá efnahagsbrotadeild komnar, enda hefði enginn verið yfirheyrður af lögreglu í málinu.
Mest lesið Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent „Það er svo mikil skömm í kringum þetta“ Innlent Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Veður Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Erlent Fleiri fréttir Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Tilkynnt um bíl fullan af flugeldum Valhöll auglýst til sölu Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Mannekla hafi mikil áhrif á fangaverði Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Íhugar ekki stöðu sína Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Langt í frá að málinu sé lokið Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Strætó enn á eftir áætlun en opnun hringvegarins í vinnslu Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Ríkislögreglustjóra sagt að endurskoða reksturinn og allt á floti í hlákunni Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Bein útsending: Langvinn einkenni Covid Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Hringvegurinn opinn á ný Sjá meira