Bjarni og Cameron funduðu í Lundúnum 11. nóvember 2011 15:17 Mynd/Íris Björk Reynisdóttir
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins fundaði í dag með kollega sínum David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Þeir hittust í Lundúnum í morgun og ræddu ESB, efnahagsmál og Icesave en Bjarni sækir nú ráðstefnu íhaldsflokka í Lundúnum. „Við ræddum stöðu ESB-viðræðnanna og efnahagsástandið í Evrópu. Bretar eru ánægðir með að vera fyrir utan evrusvæðið og Cameron er á þeirri skoðun að Bretar eigi ekki að taka upp evruna. Ég notaði tækifærið til að ræða um Icesave-deiluna við hann og vakti athygli á því að nú væri ljóst að kröfur Breta og Hollendinga fengjust að fullu greiddar. Því væri rétt að ríkin felldu þessa deilu niður og færu að horfa til framtíðar," segir Bjarni. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir ennfremur að þeir Bjarni og Cameron hafi rætt um leiðir út úr efnahagsvanda Evrópuríkja. „Á þessari ráðstefnu sem við sitjum hér hefur kastljósið beinst að leiðum út úr vandanum. Það er ljóst að þau ríki sem standa best hafa lagt áherslu á að lækka skatta, ná tökum á ríkisfjármálum og greiða niður skuldir auk þess að fjölga störfum. Það er óneitanlega mikill samhljómur með þessu og málflutningi okkar sjálfstæðismanna," segir Bjarni. „Forsætisráðherra Bretlands spurði um ástandið í íslenskum stjórnmálum og segist Bjarni hafa sagt honum að ríkisstjórnin hefði ekki getað staðið við loforð sín um að koma íslensku þjóðinni út úr kreppunni. Afleiðingin væri sú að kjósendur hefðu misst trú á ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum. Skoðanakannanir sýndu aftur á móti að Sjálfstæðisflokkurinn nyti langmests fylgis,“ segir ennfremur.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sjá meira