Ákærður Júlli hyggst opna Drauminn á ný 30. ágúst 2011 07:00 Júlli hefur rekið Drauminn í 23 ár og hefur áður fengið yfirvöld í heimsókn. Þessi mynd er tekin á góðri stundu árið 2004. Fréttablaðið/gva
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út ákæru á á hendur Júlíusi Þorbergssyni, betur þekktum sem Júlla í Draumnum, fyrir ólöglega lyfja- og tóbakssölu og peningaþvætti. Júlíus segist ætla að lýsa sig saklausan af öllum ákæruatriðum og opna söluturninn Drauminn aftur með haustinu. Júlíus var handtekinn og Draumurinn á Rauðarárstíg innsiglaður í júní í fyrra vegna gruns um að þar væru seld lyfseðilsskyld lyf og fíkniefni. Leitað var víðar í borginni og hald lagt á lyf og fjármuni. Júlíus sat í gæsluvarðhaldi í tæpa viku og Draumurinn hefur verið lokaður síðan, á grundvelli úrskurðar frá dómsmálaráðuneytinu. Ákæra var síðan gefin út réttu ári eftir að málið upp, hinn 14. júní síðastliðinn. Í henni er Júlíusi gefið að sök að hafa selt tveimur konum lyfseðilsskyld lyf án heimildar og átt í fórum sínum samtals 1.051 skammt af slíkum lyfjum, ætluðum til sölu. Þá fannst á heimili hans tæpt 21 gramm af kókaíni sem hann er talinn hafa ætlað að selja. Jafnframt er hann ákærður fyrir brot á tóbaksvarnarlögum fyrir að hafa átt og ætlað að selja tæpar tvö þúsund dósir af munn- og neftóbaki. Enn fremur er hann ákærður fyrir peningaþvætti, en í fórum hans fundust jafnvirði samtals tæplega ellefu milljónir íslenskra króna sem lögreglan telur að sé ávinningur hinnar ólöglegu starfsemi. Gerð er krafa um upptöku alls fjárins. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn sagði í samtali við Fréttablaðið í fyrra að lokun Draumsins væri ótímabundin og hann yrði ekki opnaður aftur nema úrskurði ráðuneytisins yrði hnekkt fyrir dómstólum. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn. „Við þorum ekki að túlka þetta ákvæði í lögreglulögum, um heimild til að stöðva starfsemi, öðruvísi en að það sé bara tímabundið,“ segir Sigurður Freyr Sigurðsson, fulltrúinn sem sækir málið fyrir hönd lögreglu. „Hann fær að minnsta kosti að njóta vafans.“ Menn séu að feta sig áfram með heimildina og ákveðið hafi verið að miða við að lokuninni yrði aflétt við útgáfu ákæru. Júlíus kveðst lítið vilja tjá sig um málið á þessu stigi. Hann muni þó lýsa sig saklausan og ætli tvímælalaust að opna Drauminn að nýju einhvern tíma með haustinu. „Þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég tek mér sumarfrí og það hefur verið mjög spennandi,“ segir Júlíus um liðið sumar. „Það eru margir sem sakna þess að geta litið við hjá mér og síminn hefur hringt látlaust síðan í fyrra,“ bætir hann við. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira