60 milljónum króna úthlutað til rannsóknartengdra verkefna 19. maí 2011 20:10 Styrkþegar, fulltrúar þeirra og leiðbeinendur standa. Fremst sitja Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Gunnar Helgi Hálfdanarson, formaður bankaráðs Landsbankans og formaður stjórnar Háskólasjóðs H/f Eimskipafélags Íslands, og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Myndina tók Gunnar Sverrisson.
Fyrr í dag fengu 15 doktornemar við Háskóla Íslands úthlutað samtals 60 milljónum króna í styrki úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands. Við athöfn í Hátíðasal háskólans kom enn fremur fram að síðar á árinu verður aftur úthlutað úr sjóðnum þannig að heildarúthlutun á árinu mun nálgast 100 milljónir króna. Að þessu sinni var úthlutað úr sjóðnum til rannsóknartengdra verkefna á fjölmörgum sviðum, m.a. sagnfræði, matvæla- og næringarfræði, íslensku, sálfræði, uppeldis- og menntunarfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, jarðskjálftaverkfræði, lyfjafræði, íslenskum bókmenntum, kynjafræði, eðlisfræði, eðlisefnafræði, mannfræði og orðabókafræði. Fimm verkefni hljóta styrki til þriggja ára, sex verkefni til tveggja ára og fjórir styrkir eru veittir til doktorsnema sem ljúka rannsóknum á næsta ári. Sex styrkþeganna koma erlendis frá til doktorsnáms við Háskóla Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði af þessu tilefni: „Það er áberandi í löndunum í kringum okkur hversu sterkt ákall hefur komið frá atvinnulífinu um aukinn fjölda doktorsmenntaðra. Til að mæta þessu hafa háskólar á Norðurlöndum, og reyndar um allan heim, sett skýra stefnu um fjölgun doktorsnema. Þetta hefur Háskóli Íslands líka gert með áherslu á eflingu vísindastarfs og uppbyggingu doktorsnáms þar sem ströngum alþjóðlegum gæðakröfum er fylgt. Þegar saman koma metnaðarfullir doktorsnemar og öflugir leiðbeinendur verður til kröftugt vísindastarf sem leiðir til verðmætasköpunar á fjölmörgum sviðum. Framlag Háskólasjóðs H/f Eimskipafélags Íslands til stuðnings þessari uppbyggingu Háskóla Íslands er ómetanlegt." Rekstur Háskólasjóðs H/f Eimskipafélags Íslands er í umsjá Landsbankans. Ávöxtun sjóðsins hefur verið góð síðastliðin tvö ár sem gerir úthlutun mögulega nú en um er að ræða fjórðu úthlutun úr sjóðnum. „Hluti af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja er að styðja við menntun og rannsóknir og fjárfesta með því í hugviti og þekkingu framtíðarinnar. Sá stuðningur kemur á endanum öllu samfélaginu til góða því menntun leggur grunn að fjölbreyttu og kröftugu samfélagi," sagði Gunnar Helgi Hálfdanarson, formaður bankaráðs Landsbankans og formaður stjórnar Háskólasjóðs H/f Eimskipafélags Íslands, í tilefni dagsins. „Ný þekking knýr áfram nýsköpun í atvinnulífinu og þar með hagvöxt sem er undirstaða efnahagslegra framfara og að mati margra aukinnar velferðar í framtíðinni. Það er einstaklega ánægjulegt að vera aðili að Háskólasjóðnum og taka þátt í úthlutun úr honum til okkar efnilegustu vísindamanna."
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira