Verjandi Baldurs: Fundargerðirnar ekki fullnægjandi sönnunargögn Erla Hlynsdóttir skrifar 14. mars 2011 12:44 Karl Axelsson lögmaður Baldurs Guðlaugssonar og Baldur í bak.
Karl Axelsson, verjandi Baldurs Guðlaugssonar, segir fundargerðir samráðshóps um fjármálastöðugleika ekki vera nægjanlega vel unnar til að þær geti talist fullnægjandi sönnunargögn í málinu. Þetta kom fram í málflutningi Karls í Héraðsdómi Reykjavíkur nú um hádegisbilið. Karl sagði þar að Baldur hafi frá upphafi mótmælt sönnunargildi þessara „svokölluðu fundargerða." Hann kom inn á að fundargerðirnar væru enn merktar sem „Drög" og að fulltrúum í samráðshópnum bæri ekki saman um hversu nákvæmar þær voru eða hversu góða mynd þær gæfu af fundum samráðshópsins. „Þetta er náttúrulega ekki eitthvað kvenfélag," sagði Karl og vildi meina að fundargerðir samráðshópsins hefðu þurft að vera ítarlegri. Sagði hann að fundargerðirnar væru í besta falli minnispunktar fundaritara. Baldur er ákærður fyrir innherjasvik með því að hafa hagnýtt sér innherjaupplýsingar þegar hann ákvað að selja hlutabréf sín í Landsbankanum í september 2008 fyrir 192 milljónir króna. Baldur hefur frá upphafi lýst sig saklausan af sakargiftun. Karl sagði Baldur hafa misst bæði vinnuna og æruna vegna málsins, og að hann hafi nú í tvö ár verið stöðugt milli tannanna á fólki vegna fjölmiðlaumfjöllunar. Við málflutninginn fullyrti Karl að Baldur hefði aldrei búið yfir neinum innherjaupplýsingum, að sakargiftir séu ósannaðar, að refsiheimildir í málinu sé óskýrar og að málið í heild sinni sé vanreifað. Hann vísaði til þess að Baldur hafi frá upphafi þess að Fjármálaeftirlitið fór að skoða hlutabréfasölu hans gefið þær skýringar að honum hafi stöðu sinnar vegna þótt óheppilegt og óþægilegt að eiga umrædd hlutabréf. Auk þess hafi hann metið það, sem upplýstur borgari, að best væri að selja hlutabréfin þar sem þau virtust frekar ætla að lækka í verði en hitt. Þetta mat byggði hann meðal annars á því hversu hlutabréf bankans höfðu lækkað árið áður. Baldur hafi þarna aðeins viljað sýna „ítrustu gætni" en alls ekki talið sig vera innherja. Karl sagði þetta dómsmál eiga sér „afar sérstaka sögu." Yfirvöld hafi byrjað að rannsaka það veturinn 2008 og lokið henni „með lúðrablæstri" vorið 2009." Að rannsókn lokinni hafi Baldri verið tilkynnt að ekki væri um að ræða tilefni til málssóknar. Síðan hafi rannsóknin verið tekin upp að nýju og „nákvæmlega sömu upplýsingar nú orðnar ákæruefni." Llkti Karl málssókninni við „herferð" gegn umbjóðanda sínum og sagðist hann vona að vinnubrögð í þessu máli væru ekki einkennandi fyrir uppgjör bankahrunsins. Málflutningi er nú lokið í málinu og hefur málið verið lagt í dóm. Dómari mun svo kveða upp dóminn innan fjögurra vikna.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira