Stórfyrirtæki tóku upp auglýsingar á Íslandi 14. mars 2011 20:00 Bankaauglýsing fyrir Citibank var tekin upp í Bláa lóninu fyrir skömmu. „
Þetta er auðvitað afar gleðilegt í þessu árferði og á þessum árstíma," segir Einar Sveinn Þórðarson hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus. Auglýsingar fyrir tvö bandarísk stórfyrirtæki, tyggjóframleiðandann Wrigley og bankann Citibank, voru nýverið teknar upp hér á landi af bandarísku fyrirtækjunum MJZ og RSA í samvinnu við Pegasus. Þær verða frumsýndar vestanhafs á næstu vikum. Auglýsingin fyrir Wrigley var tekin upp á Kjalvegi við Kleifarvatn en Citibank í Bláa lóninu. Tökur á síðarnefndu auglýsingunni áttu upphaflega að fara fram í Dauðahafinu en vegna ástandsins á því svæði þótti það ekki heppileg staðsetning. Þá varð Bláa lónið fyrir valinu. Tvær íslenskar karl- og kvenfyrirsætur leika í auglýsingunni ásamt bandarískri konu. Leikstjóri auglýsingarinnar var Jake Scott, sonur hins fræga leikstjóra Ridley Scott sem á að baki myndir á borð við Alien og Gladiator. Christopher Soos var kvikmyndatökustjórinn í báðum verkefnum. Hann þykir afar frambærilegur og til dæmis sá hann um tökur á síðustu kvikmynd Jake Scott, Welcome to the Rileys, með Kristen Stewart, James Gandolfini og Óskarsverðlaunahafanum Melissu Leo í helstu hlutverkum. „Þeir eru báðir mjög eftirsóttir og flottir leikstjórar," segir Einar Sveinn um Scott og Dante Ariola, sem leikstýrði Wrigley-auglýsingunni. Hann hefur gert auglýsingar fyrir Adidas, Levi"s og Nike. Að sögn Einars voru þeir ofboðslega ánægðir með dvölina á Íslandi. „Þeir vilja finna fleiri ástæður til að koma hingað. Það er auðvit-að besta auglýsingin fyrir okkur þegar menn vilja koma aftur. Þeir hrósuðu öllum deildunum í tökunum alveg í hástert." Auglýsingarnar verða sýndar um öll Bandaríkin og fá því gríðarlegt áhorf. „Þessi vörumerki eru ansi stöndug og auglýsa stórt. Við viljum bara fá meira af þessu til Íslands," segir Einar. „Það er búið að vera heilmikið af fyrirspurnum í gangi og það er ekkert eins og fólk hafi gleymt Íslandi við þetta eldgos, heldur frekar hitt. Það virðist vera að koma í ljós." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi Sjá meira