Biðja skólameistara afsökunar á auglýsingum Office1 Valur Grettisson skrifar 13. janúar 2011 10:35 Markaðsstjóri Office 1, Erling Valur Ingason, segir brandarann hafa farið úr böndunum. „
Þetta var upphaflega hugsað sem innanhúshúmor á Akureyri. Við ætluðum ekki að gera lítið úr neinum," segir Erling Valur Ingason, markaðsstjóri Office 1 en auglýsingar birtust í blaðinu Dagskránni fyrir jól með myndum af Oddi Helga Halldórssyni, formanni bæjarráðs, Jóni Má Héðinssyni, skólameistara MA og Hjalta Jóni Sveinssyni, skólameistara VMA. Aftur á móti gaf enginn þeirra leyfi fyrir því að persónur þeirra yrðu notaðar með þessum hætti. Í auglýsingunn vari haft eftir þeim að þeir ætluðu að spara í ár. Skólameisturunum er ekki skemmt en Jón Már sagði í viðtali við fréttastofuna N4 að hann væri að kanna hvaða lagalegu stöðu hann hefði við þessar kringumstæður. „Það er alvarlegt að nota embættið með þessum hætti. Á meðan við könnum stöðuna munum við ekki eiga viðskipti við umrætt fyrirtæki," var haft eftir skólameistaranum. Þess fyrir utan þá er birting myndanna klárt brot gagnvart siðareglum auglýsenda og varðar við 8. grein þeirrra reglan þar sem segir orðrétt: „Í auglýsingum skal ekki sýna eða minnast á einstaklinga, hvort sem þeir starfa á eigin eða opinberu sviði, nema áður fengin heimild sé fyrir hendi." „Ég er persónulega búinn að tala við Hjalta [Jón Sveinsson, skólameistara VMA] og biðja hann afsökunar," sagði Erling Valur og bætir við að opinber afsökunarbeiðni muni birtast í sama blaði eftir viku. Upphaflega átti afsökunarbeiðnin að birtast í þessari viku að sögn Erlings, en ekki hafi verið rými til þess. „Að sjálfsögðu biðjum við þá afsökunar," segir Erling sem vill koma því á framfæri að orð hans hafi verið slitin úr samhengi sem birtust á vef N4. Hann vill meina að hann hafi ekki sagt í viðtalinu: "Þetta var okkar húmor og fólk verður að geta tekið því. Þessir menn eru í opinberum stöðum og þurfa að spara í ár." Aðspurður segir Erling að það hafi verið starfsmennirnir sjálfir sem útbjuggu auglýsinguna en það hafi ekki verið auglýsingastofa sem stóð þar að baki. Spurður hvernig þeim hafi dottið í hug að nota persónur með þessum hætti án þess að nokkur væri spurður um leyfi sagði Erling að það væru fordæmi fyrir þessu. „Til að mynda er forseti Íslands ítrekað notaður í auglýsingum fyrir Kaffi Zimsen í Reykjavík. Þetta var hálfgerð tilraun hjá okkur sem fór úrskeiðis," segir Erling að lokum.
Tengdar fréttir Skólameistari íhugar málaferli vegna auglýsinga Office 1 Formaður bæjarráðs Akureyrar og tveir skólameistarar í bæjarfélaginu voru notaðir í heimildarleysi í auglýsingar Office 1 á Akureyri fyrir jól. Skólameistari MA skoðar nú lagalega stöðu sína. Markaðsstjóri Office 1 segir að um húmor hafi verið að ræða. 12. janúar 2011 17:45 Mest lesið Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Fleiri fréttir Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Sjá meira
Skólameistari íhugar málaferli vegna auglýsinga Office 1 Formaður bæjarráðs Akureyrar og tveir skólameistarar í bæjarfélaginu voru notaðir í heimildarleysi í auglýsingar Office 1 á Akureyri fyrir jól. Skólameistari MA skoðar nú lagalega stöðu sína. Markaðsstjóri Office 1 segir að um húmor hafi verið að ræða. 12. janúar 2011 17:45