Bíða eftir bænapresti 4. ágúst 2011 06:00 S.M. Nasir Uz Zaman, sem hér situr til hægri og er fjær, segir það kærkomna stund þegar sól sest í hafið og hægt er að setjast að snæðingi nú í Ramadan-mánuði, föstumánuði múslima. Mynd/HAG
Söfnuðurinn í Menningarsetri múslima á Íslandi bíður eftir Taha Sidique, bænapresti sínum, eða imam, en hann hefur ekki fengið dvalarleyfi þó að umsóknin hafi verið til afgreiðslu í rúma þrjá mánuði. Söfnuðurinn vonast eftir því að hann komi áður en Ramadan-mánuðurinn rennur sitt skeið á enda hinn 29. ágúst. Þá er haldin svokölluð Eid al-Fitr hátíð, sem er sambærileg jólahátíðinni fyrir kristna. S.M. Nasir Uz Zaman, talsmaður Menningarsetursins, segir að haft hafi verið samband við Útlendingastofnun í gær og þau svör fengist að umsóknin hafi fengið jákvæða umsögn þar en síðan hafi hún verið send til Vinnumálastofnunar, þar sem hún verði líklega afgreidd í næstu viku. Hanna Rún Sverrisdóttir, lögfræðingur hjá Útlendingastofnun, segir að stofnunin áskilji sér þrjá mánuði til að afgreiða umsóknir og sé miðað við þann dag þegar öll gögn liggi fyrir. Um 400 manns eru í söfnuðinum. Einnig er starfrækt hér á landi Félag múslima og eru félagsmenn 410 talsins. Það hefur einnig innan sinna vébanda tvo íslenska bænapresta. Salmann Tamimi, formaður félagsins, segir að minnsta kosti eitt þúsund múslima búa hér á landi. Föstumánuðurinn Ramadan hófst á mánudag en þá er múslimum fyrir lagt að borða hvorki þurrt né vott frá sólarupprás til sólarlags. S.M. Nasir Uz Zaman segir það ekki erfitt hér fast upp við norðurheimskautið þó að dagurinn sé afar langur. „Þessa dagana getum við ekkert borðað frá klukkan þrjú um nótt til klukkan hálf ellefu,“ segir hann. „Ég fékk mér því vel að borða eftir næturbænir fyrir klukkan þrjú í nótt,“ bætir hann við. Á næsta ári verður fastan erfiðari hjá múslimum því Ramadan ber þá upp hinn 20. júlí og stendur til 18. ágúst. Ljósmyndari Fréttablaðsins leit við á Menningarsetrinu þegar nokkrir voru að fá sér í svanginn í fyrradag. Var hann fræddur um grundvallarlíkindi með kristni og íslamstrú, en Menningarsetursmenn vilja styrkja tengsl þar á milli. jse@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira