Mikið af fölsuðum varningi í umferð 10. ágúst 2011 09:38 Fölsuð Rolex-úr er meðal þess sem er í umferð hér á landi.
Mikið magn af fölsuðum varningi er flutt til Íslands en stór hluti er gerður upptækur af tollayfirvöldum. Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofu, segir það koma mörgum á óvart hversu mikið af fölsuðum varningi er flutt til landsins. Þar á meðal eru snyrtivörur, úr, farsímar, fótboltatreyjur og jafnvel lyf. Borghildur var gestur þáttarins Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem hún vakti athygli á ráðstefnu sem Einkaleyfastofa stendur fyrir fimmtudaginn 18. ágúst í tilefni af 20 ára afmæli stofunnar. Á ráðstefnunni verður til sýnis falsaður varningur, bæði frá íslenskum og erlendum tollayfirvöldum, og upphaflega varan sýnd til samanburðar, en falsarar virðast verða sífellt færari í að sannfæra neytendur um að þeirra vara sé ekta. Borghildur segir í samtali við Bylgjuna að þeir sem flytja falsaða vöru til Íslands í því skyni að selja hana geri sér í flestum tilfellum grein fyrir því að um falsaðan varning sé að ræða. Þeir freistast þá til að selja hana fullu verði, eins og um upphaflegu vöruna sé að ræða, eða selja hana fyrir mun minni pening en þeir sem hafa ekta vöru á boðstólnum. Borghildur vekur athygli á því að þó útlitið geti verið svipað hjá falsaðri og ekta vöru þá sé vitanlega enginn sem ábyrgist gæðin á fölsuðu vörunni. Á ráðstefnunni verður einnig opnuð formlega vefsíðan Falsanir.is Þar er hægt að fræðast um falsaðan varning og koma með nafnlausar ábendingar um innflutnings- og söluaðila slíkra vara. Hægt er að hlusta á viðtalið við Borghildi Í bítinu með því að smella á tengilinn hér að ofan.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira