Tún á Suðurlandi að verða eins og eyðimörk vegna þurrka Kristján Már Unnarsson skrifar 19. júlí 2011 19:30
Tún á Suðurlandi eru farin að sviðna vegna þurrka. Bóndinn á Ósabakka á Skeiðum kveðst aldrei hafa upplifað annað eins og óttast að þurfa að fækka skepnum í vetur vegna heyskorts. Eftir kalt og þurrt vor sunnanlands tóku við sól og hlýindi, en það var ekki endilega það sem hjónin á bænum Ósabakka á Skeiðum, þau Hildur Sigurðardóttir og Jökull Helgason, óskuðu sér helst í sumar. Hjá þeim eru túnin orðin gul vegna þurrka. Jökull segir að túnin séu að þorna upp, þau séu að verða eins og eyðimörk. Þau glímdu einnig við þurrka í hitteðfyrra og sumarið þar áður en Jökull segir að ástandið nú sé mun verra, - og verra en hann hafi áður upplifað. Bóndinn er þó búinn að slá einu sinni. Uppskeran varð hins vegar aðeins um fjórðungur þess sem hann er vanur að fá í venjulegu ári. Hann hafi ekki getað beðið með slátt því annars molni heyið og bara hverfi ef það er ekki tekið. Þarna háttar svo til að sandur er undir túnunum sem sogar í sig rakann en Jökull segir mýrartún standa sig betur þar sem þau haldi betur rakanum. Allar jarðir þarna séu þó þurrar. Sandurinn þoli þetta þó engan veginn. Þau eru með um sextíu mjólkandi kýr og 230 kindur á fóðrum yfir vetrartímann. Nú stefnir í þau nái ekki að afla þeirra heyja sem þarf til að fóðra skepnurnar í vetur. Jökull óttast að þurfa að fækka í bústofninum og segist glíma við andvökunætur um hvernig eigi að bregðast við. Sumarið sé þó ekki búið og vonast hann nú til að fá rigningu á laugardag. Heitasta óskin er að fá alvöru sunnlenska rigingu, og minnst í eina til tvær vikur. Hann segir þetta það langversta sem hann hafi séð og rifjar upp að mjög slæmt kalár og kalt vor hafi verið 1979. Síðan þá hafi ekki verið heyskortur á þessu svæði, eins og nú stefni í.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira