Ferðalögin kosta 217 þúsund krónur á dag 11. mars 2011 08:00 Forseti Íslands og forsetafrú heimsóttu Indland í janúar í fyrra.
Kostnaður skattgreiðenda við hvern dag sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var erlendis í fyrra var um 217 þúsund krónur samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins. Árið áður var meðaltalskostnaðurinn 163 þúsund fyrir hvern dag. Heildarkostnaður við ferðalög forseta Íslands og forsetafrúar var ríflega 9,7 milljónir króna á síðasta ári, og um 4,4 milljónir árið 2009. Þetta kemur fram í svari embættis forseta Íslands við fyrirspurn Stöðvar 2. Meðaltalskostnaður á dag er misjafn milli ára. Þar skiptir miklu hversu margar ferðir eru farnar, hversu langt er farið og hvort forsetafrúin er með í för. Greiðslur vegna fargjalda, gistingar, dagpeninga og annars ferðakostnaðar Ólafs Ragnars námu ríflega 6,9 milljónum í fyrra. Við það bætast greiðslur vegna fargjalda Dorritar Moussaieff forsetafrúar, alls um 2,8 milljónir. Dorrit hefur aldrei þegið dagpeninga á ferðalögum. Árið 2009 voru greiðslur vegna fargjalda, gistingar, dagpeninga og annars ferðakostnaðar Ólafs Ragnars rúmlega 3,8 milljónir. Greiðslur vegna fargjalda Dorritar voru um 600 þúsund krónur. Við þennan kostnað bætast greiðslur til handhafa forsetavalds í fjarveru Ólafs Ragnars. Forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar skipta með sér sem samsvarar launum forseta fyrir hvern dag sem forsetinn er ekki á landinu. Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins nema þær greiðslur um 20 þúsund krónum á dag fyrir hvern handhafa forsetavalds. Samanlagt fengu handhafarnir þrír tæplega 5,2 milljónir króna í aukagreiðslu vegna þessa í fyrra, og tæplega 3,2 milljónir árið áður. - bj
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira