Sýndi að það er ekki þörf á nýjum sóknarmanni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2011 08:00 Kolbeinn Sigþórsson fór á kostum með AZ Alkmaar um helgina og skoraði fimm mörk í 6-1 sigri á VVV Venlo í hollensku úrvalsdeildinni. Nordic Photos / AFP
Kolbeinn Sigþórsson lék eftir 28 ára gamalt afrek Atla Eðvaldssonar þegar hann skoraði fimm mörk í 6-1 sigri AZ Alkmaar á VVV Venlo í hollensku úrvalsdeildinni um helgina. Atli skoraði öll fimm mörkin í 5-1 sigri Fortuna Düsseldorf á Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni árið 1983 og hlaut mikið lof fyrir. Það sem meira er þá skoraði Jóhann Berg Guðmundsson eina mark AZ sem Kolbeinn skoraði ekki í leiknum um helgina. Öll sex mörk AZ í leiknum voru því íslensk. „Jú, þetta vakti mikla athygli og okkur var báðum mikið hrósað eftir leikinn,“ sagði Kolbeinn í samtali við Fréttablaðið í gær. „Það er líka gaman að því að hafa jafnað þetta afrek hjá Atla og að hafa skrifað kafla í söguna. Ég vona bara að ég haldi áfram að skora þó svo að það verði ekki alltaf fimm mörk í sama leiknum.“ Kolbeinn skoraði mörkin með fjölbreyttum hætti. Tvö með hægri fæti, tvö með vinstri og eitt með skalla. Sjálfur segist hann hafa fengið þau skilaboð frá þjálfaranum að hann yrði að skora í leiknum. „Fólk var ekki ánægt eftir síðustu tvo leiki okkar og þjálfarinn sagði að ég yrði að skora. Það gaf mér aukakraft fyrir leikinn þó svo að ég setji alltaf pressu á mig í hverjum leik. Ég vil alltaf skora – annars á ég ekkert erindi í sóknina,“ segir Kolbeinn. „Það var líka gott að Jóhann hafi skorað svona glæsilegt mark eins og hann gerði. Það var skemmtilegur bónus.“ Kolbeinn hefur verið í byrjunarliði AZ síðan deildin hófst aftur eftir vetrarhlé. Hann skoraði ekki í tveimur fyrstu leikjunum í janúar en bætti fyrir það um helgina. „Þeir seldu framherjann sem hefur verið að spila mikið til Parma á Ítalíu og því er þessi staða meira út af fyrir mig núna. Ég held að ég hafi sýnt þeim að þeir þurfi ekki að kaupa nýjan sóknarmann,“ sagði Kolbeinn. „Það hafa verið sögusagnir um það síðustu vikurnar en þjálfarinn segir að hann sé ekki að skoða neina leikmenn. En þótt svo væri eru þeir vonandi hættir við það núna.“ Samningur Kolbeins við AZ rennur út eftir næsta tímabil og hafa forráðamenn liðsins ekki enn rætt við hann um nýjan samning. „Ég mun einbeita mér fyrst og fremst að því að spila vel. Það er EM [U-21 liða í Danmörku] í sumar og ég ætla að vera í toppformi þar. Ég mun sinna mínu og framhaldið kemur svo bara í ljós.“ Þetta var sjöunda sinn sem Kolbeinn var í byrjunarliði AZ í deildarleik. Alls hefur hann skorað níu mörk í þeim 20 leikjum sem hann hefur komið við sögu. Hann er langmarkahæsti leikmaður liðsins með níu deildarmörk. AZ fór upp í fimmta sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er með 37 stig, tíu stigum minna en topplið PSV Eindhoven.
Fótbolti Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir FH - Apollon | Tryggir FH sig áfram? Csíkszereda - Breiðablik | Með væna forystu í Rúmeníu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Ndiaye til Manchester City Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn