Erlent

Mannfjöldi fagnar flótta forseta Jemens

Mótmælendur veifuðu fánum og dönsuðu á götum Sanaa, höfuðborgar Jemens í gær.Fréttablaðið/ap
Mótmælendur veifuðu fánum og dönsuðu á götum Sanaa, höfuðborgar Jemens í gær.Fréttablaðið/ap
Þúsundir manna dönsuðu á götum Sanaa, höfuðborgar Jemens í gær og fögnuðu því að forseti landsins, Ali Abdullah Saleh, væri farinn af landi brott. Saleh mun hafa leitað sér lækninga í Sádi-Arabíu eftir að hann særðist í flugskeytaárás á forsetahöllina síðastliðinn föstudag. Í árásinni særðust margir háttsettir embættismenn í ríkisstjórn Saleh og ellefu verðir létu lífið.

Ali Abdullah Saleh gekkst undir aðgerð á hersjúkrahúsi í höfuðborg Sádi-Arabíu, Riyadh, þar sem fjarlægð voru sprengjubrot úr brjósti hans. Þá hlaut hann bruna í andliti og á höndum. Þessar upplýsingar fengust hjá stjórnarerindreka í Jemen, sem sagði einnig að aðgerðin hefði gengið vel. Hann vildi ekki láta nafn síns getið, þar sem hann hafði ekki leyfi til að veita upplýsingar um líðan forsetans.

Abed Rabbo Mansour Hadi varaforseti fer tímabundið með vald forseta í landinu að sögn Abdu al-Janadi ráðherra. Ráðherrann fullyrti einnig að Saleh forseti myndi snúa aftur og að hann væri við góða heilsu. Sjálfur hafði Saleh ekki gefið fyrirskipun um það að varaforsetinn færi með völd meðan hann dveldi í Sádi-Arabíu.

Mannfjöldinn á götunum vonaðist samt sem áður til að þetta þýddi endalok hátt í 33 ára valdatíðar Saleh og veifaði fánum sem meðal annars letrað var á „Kúgarinn er farinn, fólkið verður kyrrt.“

Samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum hersins átti Abed Rabbo Mansour Hadi varaforseti fund með syni Saleh, hálfbræðrum hans og frændum í Sanaa á laugardag. Sú staðreynd að svo mikilsmetnir fjölskyldumeðlimir forsetafjölskyldunnar hafi orðið eftir í borginni, þykir benda til þess að forsetinn ætli sér að snúa aftur eða að sonur hans Ahmed, muni taka við. Þá óttast mannréttindasamtök að forsetafjölskyldan grípi til örþrifaráða og skilji landið eftir í rústum, finnist henni að sér þrengt.

Margra vikna friðsamleg mótmæli snérust upp í harða bardaga milli stjórnarandstæðinga og stjórnarliða fyrir rúmlega hálfum mánuði. Talið er að yfir 200 manns hafi fallið í átökunum fram að þessu. Mjög hefur verið þrýst á Ali Abdullah Saleh að segja af sér af valdhöfum nágrannaríkjanna, sem óttast að ástandið í Jemen laði að öfl eins og Al Kaída.heida@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×