Erlent

Risarottur ráðast á börn í svefni

Rotturnar geta orðið 90 sentimetrar að lengd.
Rotturnar geta orðið 90 sentimetrar að lengd.
Grunur leikur á að risarottur hafi drepið tvö börn og eldri konu í Suður-Afríku í síðustu viku. Rotturnar eru stærri en kettir og eru stórhættulegar.

Samkvæmt frétt Aftonbladet fannst þriggja ára gömul stúlka látin á heimili sínu í síðustu viku en búið var að borða hálft andlit stúlkunnar. Talið er að risarotta hafi verið þar að verki en ekki er óalgengt að þær rati inn í bæi að nóttu til.

Sambærilegt atvik kom upp í síðustu viku þegar að risarotta réðst á stúlku í svefni. Stúlkan lést af áverkum stuttu eftir að hafa verið flutt á spítala. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var barnið alblóðugt og bitför í loftinu þar sem leið rottunnar inn í húsið sást greinilega.

Þá fannst 77 ára gömul kona látin á dögunum eftir að risarotta réðst á hana í svefni.

Rotturnar geta orðið 90 sentimetra að lengd - karldýrin geta orðið 2,4 kíló og kvendýrin 1,5 kíló.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×