Engir virkjanakostir eru óumdeildir 16. apríl 2011 09:00 Stjórnarformaðurinn og forstjórinn. Mikilvægt er að ríkið móti sér stefnu um það hvað gera skuli við arðgreiðslurnar af rekstri Landsvirkjunar í framtíðinni, að sögn Harðar Arnarsonar forstjóra.Fréttablaðið/Stefán
Landsvirkjun áætlar að reisa tíu vatnsfallsvirkjanir og fjórar jarðvarmavirkjanir fyrir 4,5 til fimm milljarða dala, jafnvirði tæpra 570 milljarða króna, á næstu fimmtán árum og auka raforkuframleiðsluna um ellefu teravattstundir. Við það mun raforkuframleiðsla Landsvirkjunar fara í um fjörutíu teravattstundir. Fyrstu tíu árin mun raforkuframleiðsla Landsvirkjunar aukast um 7,3 teravattstundir. Það sem upp á vantar verður fengið með öðrum orkukostum á borð við virkjun sjávarfalla, vindorku og jarðvarma. Virkjanirnar verða meðal annars í neðrihluta Þjórsár, á Þeistareykjum og Hólmsá. Þá er á meðal virkjanakosta Búðarhálsvirkjun. Framkvæmdir við hana fóru á fullt í fyrra og er stefnt á að hún verði gangsett í lok árs 2013. Uppbyggingin er liður í fimmtán ára áætlun sem Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar kynnti á ársfundi fyrirtækisins í gær. Hann sagði alla virkjanakosti umdeilda en taldi líkur á að sátt myndi nást um aukningu raforkuframleiðslu í á milli þrjátíu til fimmtíu teravattstunda. Á svipuðum nótum talaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, sem sagði mikilvægt að þjóðin næði sátt í virkjanamálum. Hörður benti á að þótt góður árangur hefði náðst í rekstri Landsvirkjunar væri fyrirtækið enn of skuldsett í samanburði við evrópsk orkufyrirtæki. Stefnt væri að því að greiða niður skuldir. Áætlun Landsvirkjunar um aukna arðsemi ætti stóran þátt í því. Hörður sagði jafnframt að þegar uppbyggingu lýkur muni áhrif af arð- og skattheimtum hins opinbera af rekstri Landsvirkjunar verða sambærileg og áhrif olíugeirans á Noreg. Þær gætu numið á bilinu fjögur til átta prósent af landsframleiðslu á ári. Áhrifin af olíuiðnaðinum ytra nema sex prósentum af landsframleiðslu. Miðað við þetta gæti ríkissjóður fengið á bilinu sextíu til 120 milljarða króna í arð og skatta frá Landsvirkjun á ári hverju. Hæst fóru arðgreiðslur í tæpar níu hundruð milljónir króna árið 2008 en hafa engar verið síðastliðin tvö ár. jonab@frettabladid.is
Tengdar fréttir Alþingi á ekki að skipta sér af rekstrinum Ríkið verður að setja sér stefnu um það með hvaða hætti það eigi að fara með eigendavald sitt, að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar. Í ræðu sinni á ársfundinum sagði hún fyrirtæki í opinberri eiga að fá að starfa óhindrað á viðskiptalegum forsendum og án íhlutunar eigenda sinna. 16. apríl 2011 09:00 Mest lesið „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Innlent Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Innlent Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti Innlent Fleiri fréttir Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu Sjá meira
Alþingi á ekki að skipta sér af rekstrinum Ríkið verður að setja sér stefnu um það með hvaða hætti það eigi að fara með eigendavald sitt, að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar. Í ræðu sinni á ársfundinum sagði hún fyrirtæki í opinberri eiga að fá að starfa óhindrað á viðskiptalegum forsendum og án íhlutunar eigenda sinna. 16. apríl 2011 09:00