Bensínbílar fari úr borgum árið 2050 2. ágúst 2011 10:00 Farmflutningabílum sem gefa frá sér koltvísýring skal útrýmt úr evrópskum borgarsamfélögum fyrir árið 2030. fréttablaðið/gva
Evrópusambandið hefur gefið út hvítbók í samgöngumálum og vinna EFTA-ríkin nú sameiginlega að umsögn um hana. Í hvítbókinni er að finna tíu leiðir sem unnið verður að til að ná markmiðinu um samkeppnishæft samgöngukerfi, sem nýtir endurnýjanlega orkugjafa. Markmiðið er að ná takmarkinu um sextíu prósenta samdrátt útblásturs. Meðal þeirra leiða má nefna þróun og nýtingu nýs og sjálfbærs eldsneytis og knúningskerfa. Í því skyni á að fækka ökutækjum sem nýta sér hefðbundna orkugjafa um helming til ársins 2030 og útrýma þeim úr borgarsamfélögum fyrir árið 2050. Farmflutningabílum sem gefa frá sér koltvísýring á hins vegar að útrýma úr borgarsamfélögum fyrir árið 2030. Endurnýjanlegt flugvélaeldsneyti á að nema fjörutíu prósentum fyrir árið 2050 og minnka á útblástur koltvísýrings frá skipum um allt að fjörutíu prósent á sama tíma. Samkvæmt hvítbókinni á einnig að auka nýtingu samtengdra og orkusparandi flutningakerfa, svo sem járnbrauta og skipa. Ætlunin er að koma á nýju flugleiðsögukerfi (SESAR) innan Evrópu fyrir árið 2020 og einnig á sameiginlegu evrópsku flugsvæði. Þeir sem það vilja geta sent inn athugasemdir við umsögn EFTA-ríkjanna til innanríkisráðuneytisins.- kóp
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira