Fimm ára gömul börn með átröskun Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. ágúst 2011 20:15 Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur lengi verið sögð vera óeðlilega grönn og slæm fyrirmynd. Harrison segir ekki hægt að kenna fyrirsætum um. Mynd/ AFP.
Börn, allt niður í fimm ára að aldri, eru lögð inn á sjúkrastofnanir í Bretlandi vegna lystarstols. Kona sem glímt hefur við lystarstol, eða anorexiu eins og sjúkdómurinn heitir á enska vísu, segir við Sky fréttastöðina að glanstímaritum sé ekki um að kenna. Johanna Harrison var greind með lystarstol þegar hún var fimmtán ára gömul. Hún segir þó að rekja megi sjúkdóminn mun lengra aftur í tímann. Hún segir við Sky fréttastöðina að hún muni eftir því að hún hafi farið með mikilli leynd að öllum mat þegar hún var sjö ára gömul. Hún hafi falið mat og borðað hann seint á kvöldin. „Ég man eftir því að ég leit svo á að það væri ekki gott að fá hollan mat og ég boðaði mig því fulla af ruslfæði. Slíkt mataræði er sjálfsskemmandi. Mér var strítt í skóla og ég var óhamingjusöm. Ég blés því út og var komin í mikla yfirvigt," segir Harrison. Á ákveðnum tímapunkti hætti Harrison því að borða. Þá fékk hún hrós fyrir að grennast.Johanna Harrison segir ekki hægt að kenna glanstímaritum um átröskunarsjúkdóma.Johanna segir að lystarstolið hafi ekki snúist um aðdáun á frægu fólki í glanstímaritum. Það hafi heldur ekki snúist um einhverja þrá til að verða mjög grönn. Miklu flóknari ástæður hafi legið að baki lystarstolinu. „Ég efast um að litlar stelpur, allt niður í fimm ára að aldri, séu að skoða tímarit og hugsi með sér að þær verði að líta út eins og fyrirsæturnar. Þetta bara virkar ekki þannig. Ef þetta snerist allt um stærð og þyngt, þá væri þetta kallað þyngdarsjúkdómur," segir Harrison. „Þetta snýst allt saman um mat og það hvernig þú getur notað mat til þess að rústa sjálfum þér. Fólk af allri þyngd og allri stærð getur fengið átraskanir," segir Harrison.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira