Hreindýraland, tónleikar á Skálholti og Þórbergssetur tilefnd 4. febrúar 2011 09:58 700IS Hreindýraland er alþjóðleg kvikmynda- og vídeólistahátíð sem haldin er á Egilsstöðum.
Eyrarrósin, árleg viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent í sjöunda sinn á Bessastöðum 13. febrúar næstkomandi. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: 700IS Hreindýraland á Egilsstöðum, Sumartónleikar í Skálholti og Þórbergssetur á Hala í Suðursveit. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið Eyrarrósarinnar er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta. Við athöfnina verður tilkynnt hvert framangreindra verkefna hlýtur Eyrarrósina í ár; fjárstyrk að upphæð 1,5 milljón kr, verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 250 þúsund króna framlag auk flugferða. Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar. Umsögn valnefndar um tilnefnd verkefni:700is Hreindýraland 700IS Hreindýraland er alþjóðleg kvikmynda- og vídeólistahátíð sem haldin er á Egilsstöðum. Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og stendur yfir í vikutíma í mars ár hvert. Áhersla er lögð á að sýna tilraunakennda kvikmyndalist og á hátíðin í góðu samstarfi við skóla á Fljótsdalshéraði sem og innlendar og erlendar menningarstofnanir. Virk þátttaka Héraðsbúa sem og öflugt Evrópusamstarf gefur hátíðinni mikið gildi og skipuleggjendur hafa unnið frumkvöðlastarf í kynningu myndbanda- og vídeólistar. 700IS Hreindýraland er áhugaverður bræðingur listgreina sem auðgar menningar- og mannlíf á Austurlandi sem og alla ferðaþjónustu á svæðinu, með því að laða að erlenda og innlenda listamenn og gesti utan hefðbundins ferðamannatíma.Sumartónleikar í Skálholti Sumartónleikar í Skálholti hafa í þrjátíu og fimm ár verið haldnir í nokkrar vikur á hverju sumri í Skálholtsdómkirkju í Biskupstungum. Jafnframt er þar staðið að öflugri útgáfu og rannsóknum á tónlistararfinum. Fjölbreytt efnisval og gæði Sumartónleikanna laða að stóran hóp tónlistarunnenda auk ferðamanna og annarra gesta enda orðnir fastur liður í lífi fjölda fólks. Listrænn metnaður hátíðarinnar hefur eflt nýsköpun í tónlist, stuðlað að vakningu á flutningi barokktónlistar á Íslandi og dýpkað þekkingu á íslenska söngarfinum. Sumartónleikar í Skálholti eru mikilvægur menningarviðburður sem jafnframt veitir almenningi greiðan aðgang að einum sögufrægasta stað landsins.Þórbergssetur Meginhlutverk Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit er að kynna líf og verk Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar, íslenskan bókmenntaarf og um leið sögu þjóðarinnar. Jafnframt hefur Þórbergssetur frá stofnun, árið 2006, verið öflugt í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu í Skaftafellssýslum, varðveitt og viðhaldið staðbundinni þekkingu og þjóðlegum menningarverðmætum. Starfið í Þórbergssetri er byggt á faglegum grunni og frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á samstarf við mennta- og menningarstofnanir í héraði og víðar. Sérstaða Þórbergsseturs felst ekki síst í þekkingu heimamanna á náttúru og umhverfi, auk sagnahefðar sem byggir á einstakri færni og framsetningu á íslenskri tungu í verkum eins merkasta rithöfundar þjóðarinnar. Eyrarrósina 2010 hlaut tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra. Aðrir Eyrarrósarhafar eru: Landnámssetrið í Borgarnesi, rokkhátíðin Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira