Svandís vildi frávísun í fyrra - segist nú hafa þurft dómsniðurstöðu 16. febrúar 2011 12:22
Fullyrðingar umhverfisráðherra um að hún hafi talið nauðsynlegt í dómsmálinu gegn Flóahreppi að fá skorið úr lagaóvissu virðast í mótsögn við tilraun hennar í fyrra til að fá málinu vísað frá dómi og koma þannig í veg fyrir dómsniðurstöðu. Þá hafði ákvörðun hennar um áfrýjun til Hæstaréttar enga efnislega þýðingu því lögin umdeildu voru í millitíðinni numin úr gildi. Svandís Svavarsdóttir hefur í vörn sinni vegna tapaðra málaferla gegn Flóahreppi haldið því fram að nauðsynlegt hafi verið að áfrýja til Hæstaréttar til að fá skorið úr um lagaóvissu þar sem leiðsögn héraðsdóms hafi ekki verið nægilega skýr. Spyrja má hvort umhverfisráðherra sé þarna kominn í mótsögn við sjálfan sig því í fyrravor reyndi Svandís að fá málinu vísað frá dómi þegar Flóahreppur taldi nauðsynlegt að fá úr því skorið hvort lagatúlkun hennar stæðist. Þá hefur Svandís verið gagnrýnd fyrir að vísa málinu til Hæstaréttar, eftir að hún tapaði því fyrir héraðsdómi í haust, þar sem Alþingi breytti lögunum umdeildu aðeins tæpri viku eftir að héraðsdómur féll, og bætti inn heimild til sveitarfélaga til að innheimta kostnað vegna skipulagsvinnu. Bent hefur verið á að áfrýjun til Hæstaréttar hafi því ekki haft aðra þýðingu en að túlka lög sem voru fallin úr gildi, auk þess að tefja staðfestingu aðalskipulags hreppsins. Ennfremur hefur Svandís verið gagnrýnd fyrir að blanda umhverfismálum inn í deiluna þar sem niðurstaða umhverfismats Urriðafossvirkjunar fékkst fyrir sjö árum, með staðfestingu Skipulagsstofnunar og þáverandi umhverfisráðherra. Þá benti þingmaður Framsóknarflokks, Sigurður Ingi Jóhannsson, á það á Alþingi í gær að ekki var tekist á um umhverfismál í dómsmálinu. "Dómur héraðsdóms og Hæstaréttar snerist um að ráðherra hefði ekki farið að lögum, - hefði ekkert með umhverfismál að gera. Ráðherra braut á stjórnskipulegum rétti sveitarfélaga til að fara með skipulagsmál," sagði þingmaðurinn.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira