Æskulýðsfélög vilja kynferðisbrotafagráð 27. júlí 2011 05:45 Guðrún jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að heildarbreytinga sé þörf. Mynd/gva
Guðrún Ögmundsdóttir Formaður fagráðs telur brýnt að skoða meðferð kynferðisbrota hjá æskulýðs- og íþróttafélögum. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur heyrt af því að íþrótta- og æskulýðsfélög vilji að stofnað verði fagráð eða skýrar verklagsreglur settar um meðferð kynferðisbrota sem framin eru innan vébanda félaganna. Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytisins, segir enn enga formlega beiðni hafa borist ráðuneytinu, en henni verði tekið fagnandi. „Við höfum heyrt af því að innan frjálsra félagasamtaka eins og ÍSÍ, skátanna, KFUM og KFUK sé áhugi fyrir því að að búa að minnsta kosti til skýra viðbragðs-áætlun vegna þessara mála,“ segir Ásta. „Við vitum að þetta er í deiglunni.“ Guðrún Ögmundsdóttir, formaður fagráðs innanríkisráðuneytisins um meðferð kynferðisbrota innan trúfélaga, segir afar brýnt að skoða þau lög sem snúa að meðferð kynferðisbrota. Áætlanir séu um að fagráðið fari í samstarf við önnur ráðuneyti í haust til að skoða meðferð kynferðisbrota innan íþrótta- og æskulýðsfélaga. „Næsta skref er að skoða lög um íþrótta- og æskulýðsmál, sem er afar brýnt,“ segir Guðrún og telur nauðsynlegt að skoða alla lagabálka um fagráð og siðareglur. „Í haust munum við sjá slíkar lagabreytingar, ég efast ekki um það.“ Tilkynningum um mál tengd kynferðislegu ofbeldi mun fjölga með stofnun nýs fagráðs, að mati Guðrúnar. „Þegar það gerist má búast við gömlum málum úr þessum geira,“ segir Guðrún. „Við eigum eflaust eftir að sjá mun fleiri mál. Ég held að þetta sé bara toppurinn á ísjakanum.“ Hún ítrekar að afar brýnt sé að setja sterkar siðareglur og lagaramma í tengslum við kynferðisbrot innan alls barna- og unglingastarfs, ekki einungis trúfélaga. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, telur þessar hræringar með skipun fagráða tákn um aukna vitund, áhyggjur og ábyrgð í kynferðisbrotamálum. Hún bendir jafnframt á að það sé einnig til marks um að heildarstefnumörkun þurfi að eiga sér stað í málaflokknum. „Það er augljóst að það kerfi sem við búum við dugar ekki. Þess vegna þarf að gera allsherjar breytingu í þessum málum,“ segir Guðrún. „Það þarf að fara ofan í alla sauma og finna framtíðarlausn.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður Fleiri fréttir Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Sjá meira