Eyjólfur Sverrisson nýr landsliðsþjálfari í Mýrarbolta 27. júlí 2011 10:28 Eyjólfur Sverrisson er landsliðsþjálfari í Mýrarbolta.
Stjórn Mýrarboltafélags Íslands hefur skrifað undir samning við Eyjólf Sverrisson um að hann þjálfi bæði landslið Íslands í mýrarbolta, karla og kvenna. Launakjör eða önnur ákvæði samningsins verða ekki gefin upp að svo stöddu. „Þetta er ánægjulegt skref. Mig hefur í nokkurn tíma vantað þægilega aukavinnu sem borgar vel, og þetta djobb uppfyllir þær kröfur," segir Eyjólfur í fréttatilkynningu. „Ég man að einu sinni var ég á landbúnaðarsýningu í nágrenni við Stuttgart og þar sá ég fjögur ægileg svín takast á í stíu. Þar sýndist mér sá feitasti hafa ótvíræða yfirburði og því er líklegt að ég muni leggja á það ríka áherslu að landsliðsmennirnir borði kolvetna- og fituríka fæðu. Leikskipulag hefur líklega minni áhrif," bætir Eyjólfur við. Eyjólfur furðar sig á að KSÍ hafi ekki tekið upp regluna um skítkast. „Nóg er nú drullumakið inná vellinum. Mér sýnist skítkastið vera eina ærlega leiðin til að veita fótboltadólgum ráðningu. Mér dettur til dæmis í hug að leikaraskapur, munnbrúk og rangt tekið innkast varði við skítkast." „Stórum áfanga er náð. Eyjólfur er búinn að vera í drullumálum síðustu misseri, og samkvæmt þessum samningi verður hann það áfram," segir Jóhann Bæring Gunnarsson aðalritari Mýrarboltafélags Íslands og drullusokkur. „Eyjólfur er átrúnaðargoðið mitt." „Ég er enn ósammála þessu vali, þessi Eymundur þarna er alltof dýr miðað við hvað hann hefur verið að sýna upp á síðkastið," segir Jón Páll Hreinsson gjaldkeri. „Jói verður að sýna mér hvaðan hann ætlar að fá þessa peninga eða ég hætti í stjórninni, það eru hreinar línur. Það er kominn tími til að hann taki niður innrammaða plaggatið sem hann á af Eyjólfi í Besiktas-treyjunni, hengi brúðkaupsmyndina sína aftur upp og fullorðnist."
Mest lesið „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Tvær tilkynningar um eld Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjá meira