Innlent

Þjóðhátíð í Eyjum: „Nú verður ekki aftur snúið“

Frá Þjóðhátíð í Eyjum 2010.
Frá Þjóðhátíð í Eyjum 2010.
Undirbúningi fyrir Þjóðhátíð í Eyjum er nú nánast lokið. Þjóðhátíðargestir hafa þegar tekið að streyma til eyjarinnar og segir Elliði Vignisson, bæjarstóri Vestmannaeyjabæjar, að nú verði ekki aftur snúið.

„Í morgun hefði maður getað hætt við, ef illa hefði legið á manni, en það verður ekki aftur snúið úr þessu." sagði Elliði, en þegar fréttastofa náði tali af honum var hinu árlega súluhlaupi nýlokið, sem Elliði segir vera upphaf þjóðhátíðarinnar hjá Vestmannaeyingum.

Súluhlaupið kallast það þegar heimamenn fá tækifæri til að taka frá stað fyrir hvítu tjöldin sem vestmannaeyskar fjölskyldur reisa á hátíðarsvæðinu ár hvert. "Það er ræst, talið niður og svo þegar klukkan stendur í núlli, þá ryðjast þúsundir manna inn á völlinn til að finna sér ásættanlegt tjaldstæði."

Hvítu tjöldin þekkja eflaust flestir þeir sem lagt hafa leið sína á hátíðina, en þar taka heimamenn á móti gestum og fagna með fjölskyldu og vinum. „Þetta er hátíð okkar heimamanna, sem við bjóðum svo fólki að taka þátt í, og sem betur fer þiggja þúsundir það á hverju ári." segir Elliði og bætir við: „Samfélagið í Vestmannaeyjum er búið að halda Þjóðhátíð í sennilega nálægt 140 skipti, þannig að við kunnum þetta nú orðið svona ágætlega."

Elliði segist eiga von á því að hátíðin í ár verði minni en sú sem haldin var í fyrra. Ástæðuna segir hann einfalda: „Flutningsgetan er takmarkaðri núna. Herjólfur ber færri og það eru færri sem komast með flugi milli lands og eyja, og það er það sem ræður stærðinni á Þjóðhátíð." Í fyrra voru um 16 til 18 þúsund manns á hátíðinni, en Elliði segist búast við að um 14 til 16 þúsund manns sæki hátíðina í ár.

Fækkun milli ára segir Elliði þó ekki vera áhyggjuefni. "Kappsmálið hjá okkur er ekki að fá sem flesta, heldur að gera þetta sem best."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×