Skóla- og frístundamál sameinuð undir einu sviði 18. apríl 2011 13:32
Borgarráð hefur samþykkt að hafinn skuli undirbúningur að sameiningu leikskóla- og menntasviðs. Ennfremur verða þau verkefni sem nú eru á skrifstofu tómstundamála á íþrótta- og tómstundasviði hluti af sameinuðu sviði, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en umrædd verkefni eru meðal annars umsjón með frístundamiðstöðvum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum og öðru tómstundastarfi barna og ungmenna. Tillögurnar verða til umræðu og afgreiðslu á fundi borgarstjórnar á morgun segir ennfremur. „Börn og ungmenni eiga að vera í fyrirrúmi í allri þjónustu Reykjavíkurborgar. Þjónustan á að miða að innihaldsríkum starfsdegi sem er barnvænn en einnig fjölskylduvænn. Mikilvægt er að líta svo á að allt umhverfi barna og ungmenna, hvort heldur sem um er að ræða á frístundaheimili eða í skóla, sé eitt lærdómssamfélag þar sem skilningur og virðing fyrir velferð barna og þörfum fjölskyldna er ríkjandi. Til að ná því markmiði er mikilvægt að brjóta upp hefðbundin skil á milli leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs og vinna markvisst að því að samþætta faglegar áherslur í stefnumótun og starfi.“ Þá segir að stöður sviðsstjóra menntasviðs og leikskólasviðs verða lagðar niður og staða sviðsstjóra sameinaðs sviðs auglýst laus til umsóknar. „Borgarstjóra hefur verið falið að skila tillögu að sameiningu ásamt umsögn stjórnkerfisnefndar í byrjun maí en stefnt er að því að nýr sviðsstjóri taki til starfa eigi síðar en 1. júlí næstkomandi.“ „Markmið með sameiningu sviða sem þjóna börnum og ungmennum á leikskólaaldri, grunnskólaaldri og í frítímaþjónustu til 18 ára aldurs er í fyrsta lagi að stuðla að heildstæðri faglegri stefnumótun og þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Í öðru lagi er markmiðið að efla yfirsýn yfir málaflokkinn, auka samræmingu og samfellu á milli þjónustuþátta. Í þriðja lagi er markmiðið að efla þverfaglegt samstarf starfsfólks til að styrkja og samþætta þá nauðsynlegu fagmennsku sem er forsenda heildstæðrar þjónustu. Með sameiningu sviðanna næst fram faglegur ávinningur, samþætting starfa og öflug heildarsýn á þjónustuna sem aftur skilar fjárhagslegum ávinningi þegar innleiðingu sameiningar er lokið,“ segir að endingu og því bætt við að fundur hafi verið haldinn með starfsfólki sviðanna sem um ræðir, þar sem borgarstjóri kynnti þær breytingar sem væru í vændum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira