Kostnaður við heilbrigðisþjónustu aukist um eitt og hálft prósent Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 28. október 2011 19:45
Kostnaður við heilbrigðisþjónustu hefur aukist um eitt og hálft prósent á ári frá hruni, þrátt fyrir mikinn niðurskurð. Ráðast þarf í umfangsmiklar breytingar á heilbrigðisgeiranum til að auka hagkvæmni segir starfshópur velferðarráðuneytisins. Starfshópur velferðarráðuneytisins um heilbrigðiskerfið kynnti niðurstöður sínar í dag enn hann fékk meðal annars sænskan hóp sérfræðinga frá einu fremsta ráðgjafafyrirtæki heims, Boston Consulting Group, með sér í lið við að greina skipulag og stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu hópsins kemur meðal annars fram að ástæða fyrir auknum kostnaði í heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir niðurskurð eftir hrun sé aðallega vegna aukinna lyfjagreiðslna og hjúkrunarkostnaðar á meðan kostnaður við spítalaþjónustu hefur dregist saman. Þá veltir hópurinn fyrir sér hvort að fjöldi heilbrigðisumdæma og sjúkrastofnana sé hugsanlega of mikill. Gerðar eru athugasemdir við fjölda sjúkrabíla sem nýtast misjafnlega og að nýting fæðingarþjónustu og skurðaðgerða á níu stöðum á landinu sé óhagkvæm.Þá sé mikið misræmi í framboði öldrunarþjónustu. Einnig eru athugasemdir gerðar við að ekki sé til staðar samtengd sjúkraskrá fyrir allt landið og engin þjónustustýring sé til staðar sem veldur því að fólk fer frekar til sérfræðilækna en heimilislækna. Í tillögum starfshópsins er lagt til að koma á samtengdri rafrænni sjúkraskrá fyrir allt landið. Hópurinn vill einnig endurskipuleggja greinina að verulegu leyti. Endurskoða notkun hjúkrunarrýma og sjúkrarýma og staðsetningar á þjónustu um allt land með tilliti til bættra samgangna. Endurskipuleggja heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu og samræma framboð öldrunarþjónustu á landsvísu. „Bættar samgöngur, breyting á fólksfjölda og annað hefur auðvitað áhrif á ákveðnum svæðum og við erum að aðlaga okkur að því og á sama tíma viljum við hafa mjög öfluga spítala þannig við þurfum ekki að sækja mikla þjónustu erlendis og allt kostar þetta. En ég held að við getum alveg náð þessu, það er ekki spurning um það heldur bara að standa saman um að gera þetta," segir Guðbjartur Hannesson, velferðaráðherra.
Mest lesið Þetta fær Hildur í laun Innlent Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Innlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Erlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu Innlent Fleiri fréttir Minniháttar röskun gæti haft alvarlegar afleiðingar Hótaði að drepa konu og hundinn hennar Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Þórdís Lóa ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ „Við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma“ Baráttan um 17. júní Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þetta fær Hildur í laun Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Sjá meira