„Gaman að æfa með Daly“ 17. ágúst 2011 05:00 Ólafur, sem er 24 ára að aldri, varð Íslandsmeistari árið 2009 með eftirminnilegum hætti. Hann stundar háskólanám í Bandaríkjunum þar sem hann hefur náð góðum árangri í íþrótt sinni. Hann er sexfaldur klúbbmeistari Nesklúbbsins. fréttablaðið/gva
Ólafur Björn Loftsson, fyrrverandi Íslandsmeistari úr Nesklúbbnum, varð fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sér keppnisrétt á móti á PGA-mótaröðinni með sigri á hinu sterka Cardinal áhugamannamóti á sunnudag. Ólafur hefur með sigrinum ekki aðeins skrifað nýjan kafla í íslenska golfsögu heldur er það mat manna að árangur hans geti haft djúpstæðari þýðingu fyrir íslenskt golf þegar til framtíðar er litið. Ólafur hefur nú dvalið á mótssvæðinu við æfingar síðan á mánudag og segir það ótrúlega reynslu að undirbúa sig fyrir golfmót í þeim félagsskap sem hann hefur verið í undanfarna daga. „Það verður að viðurkennast að það var magnað að slá á æfingasvæðinu við hliðina á John Daly. Það er erfitt að einbeita sér að æfingunum og setjast ekki einfaldlega niður til að fylgjast með þessum snillingum sem maður hefur litið upp til frá barnsaldri“, segir Ólafur hlægjandi. Ólafur vill ekki gera mikið úr árangri sínum en hlakkar mikið til að byrja að spila. „Við byrjum allir á sama skori, svo það er aldrei að vita.“ Mótið, sem hefst í dag, er haldið á velli Sedgefield golfklúbbsins í Greensboro í Norður-Karólínu. Eins og gefur að skilja hefur Ólafur lagt áherslu á að spila nokkra æfingahringi til að kynnast vellinum sem andstæðingar hans, margir hverjir, hafa spilað margoft í gegnum árin. Ólafur segist undirbúa sig á sama hátt og fyrir önnur golfmót. „Ég reyni, þó erfitt sé, að líta á þetta sem hvert annað mót. En þetta er draumi líkast að fá að spila á meðal þeirra bestu. Það stendur upp úr og gaman að fá að kynnast því hvernig þetta gengur fyrir sig.“ Jón Ásgeir Eyjólfsson, forseti Golfsambands Íslands, ætlar að verða vitni að þessum tímamótum í íslensku golfi og fór utan í gær. „Með þessu er brotið blað í íslenskri golfsögu. Um þetta dreymir tugþúsundir kylfinga án þess að ná þessu takmarki nokkru sinni. Þetta er stórkostlegt og ég hef fylgst með Ólafi frá því að hann var strákur. Hann á þetta skilið fyrir mikla vinnu. Þýðing þessa er kannski ekki síst að hér hefur íslenskur kylfingur sýnt að þetta er mögulegt og eyðir kannski efanum úr huga annarra íslenskra kylfinga.“ Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og golfkennari, tekur undir með forseta GSÍ. „Þetta sýnir okkur hvað íslenskir kylfingar geta. Ólafur er frábær fyrirmynd.“ Þorsteinn segir að háskólagolfið í Bandaríkjunum hjálpi Ólafi mikið, en þar er hann að spila reglulega við áþekkar aðstæður. Um mótið segir Þorsteinn að um stórkostlegt tækifæri sé að ræða. „Ólafur hefur allt að vinna. Eina sem gæti háð honum er högglengdin en á móti kemur að hann er frábær í stutta spilinu. Vonandi tekst honum að leika vel. Það er ekki sjálfgefið þegar þú lendir kannski í ráshópi með Davis Love eða John Daly. Einhver myndi óska sér þess að vera frekar í hópi áhorfenda þó ég viti að það á ekki við um Ólaf,“ segir Þorsteinn. svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Því miður er verklagið þannig“ Innlent Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Erlent Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni Innlent Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Erlent Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Innlent Þjóðvegi eitt lokað vegna veðurs Innlent Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Erlent Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Erlent Viðbrögð hjólreiðamannsins að einhverju leyti skiljanleg Innlent Fleiri fréttir Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Þjóðvegi eitt lokað vegna veðurs Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni „Því miður er verklagið þannig“ Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Ögmundur Ísak ráðinn til þingflokks Sjálfstæðisflokksins Viðbrögð hjólreiðamannsins að einhverju leyti skiljanleg Fjárhagsstaðan alvarleg og tímabundin ráðning ráðgjafans ekki endurnýjuð Formannskosningu Pírata frestað Fastur heima í þrjá daga út af engum mokstri Þurfa mögulega að fresta formannskosningu vegna formgalla Flughálka í kortunum, breytingar hjá bönkunum og formaður Pírata Reyna að lokka íslenska lækna heim Óvenjulegir smáskjálftar reyndust sprengingar Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Fylgjast með smáskjálftum við Bláa lónið Kirkjuþing skorar á stjórnvöld að hækka sóknargjald Ósammála ráðherra um að atkvæðajafnvægi sé mannréttindamál Ungir innflytjendur á Íslandi ekki jafn jaðarsettir og í Svíþjóð Leita til UNESCO vegna Vonarskarðs og kæra kynjahalla Aukin verðbólga áhyggjuefni og asahláka í kortunum Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Séra Flosi Magnússon fallinn frá Að jafnaði tilkynnt um tólf kynferðisbrot í hverri viku Var ofurölvi þegar hann hljóp yfir Reykjanesbraut „Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Fundi slitið án árangurs og nýr ekki boðaður „Fyrstu þrjú árin sem ég var veik voru algjört helvíti“ Vill sjá byggingakrana í Úlfarsárdal á næsta ári Reikna með flughálum vegum Sjá meira