Telja að sami hákarlinn hafi verið að baki báðum árásum 17. ágúst 2011 22:45 Grunur leikur á að einn hákarl hafi verið valdur að dauða tveggja manna í mánuðinum. Mynd/AFP
Heimamenn á Seychelles eyjum telja að sami hákarlinn hafi verið að baki báðum þeim árásum sem dregið hafa tvo menn til dauða á eyjunum í þessum mánuði. Ströndum á eyjunni þar sem harmleikirnir áttu sér stað hefur nú verið lokað. Báðar árásirnar áttu sér stað í sjónum við Anse Lazio ströndina á Paslin eyju í Seychelles eyjaklasanum, en ströndin hefur ítrekað verið kosin ein sú besta í heiminum. Í fyrri árásinni, sem átti sér stað þann 2. ágúst síðastliðinn, lét 36 ára gamall ferðamaður frá Frakklandi lífið. Í gær lést svo hinn þrítugi nýgifti Ian Redmond frá Bretlandi, sem var nýkominn til eyjunnar ásamt eiginkonu sinni, en þau voru þar stödd í brúðkaupsferð. Manni á smábát tókst að draga Redmond upp úr sjónum eftir árásina í gær og var hann lýstur látinn við komuna á sjúkrahús. Redmond lést af völdum blóðmissis, en hákarlinn hafði rifið af honum handlegg auk þess sem hann beit hluta af vinstri fótlegg hans. Yfirvöld Seychelles eyja vinna nú að því að finna hákarlinn, sem talið er að beri ábyrgð á báðum árásunum. Samkvæmt sérfræðingi sem Sky fréttastofan ræddi við í dag er hákarl sem hefur bragðað mannablóð eða tapað ótta sínum við menn, afar líklegur til að ráðast aftur á manneskjur. Árlega berast fregnir af um 60-80 hákarlaárásum víðsvegar um heim, en á síðasta ári létust 6 í slíkum árásum. Árásir síðustu tveggja vikna eru hinsvegar einu hákarlaárásirnar í sögu Paslin eyjarinnar í tæp 50 ár.
Tengdar fréttir Lést í hákarlaárás í brúðkaupsferðinni sinni Yfirvöld á Seychelles eyjum hafa staðfelst að þrítugur karlmaður frá Bretlandi hafi látið lífið þegar hákarl réðst á hann við Paslin eyju í dag. Maðurinn var staddur á eyjunni ásamt eiginkonu sinni í brúðkaupsferð þeirra hjóna. 16. ágúst 2011 23:05 Mest lesið Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Fleiri fréttir Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá þig“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Sjá meira
Lést í hákarlaárás í brúðkaupsferðinni sinni Yfirvöld á Seychelles eyjum hafa staðfelst að þrítugur karlmaður frá Bretlandi hafi látið lífið þegar hákarl réðst á hann við Paslin eyju í dag. Maðurinn var staddur á eyjunni ásamt eiginkonu sinni í brúðkaupsferð þeirra hjóna. 16. ágúst 2011 23:05
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila