Trúi að systir mín komi til baka 12. mars 2011 22:15 Margrét Stefánsdóttir. Myndin er tekin af Margréti fyrir slysið alvarlega sem hún lenti í 13. maí síðastliðinn.
Fyrir tíu mánuðum hlaut Margrét Stefánsdóttir alvarlega höfuðáverka í hjólreiðaslysi. Hún var ein á ferð og þvíenginn til frásagnar um hvernig slysi ð vildi til en það varð Margréti til lífs að vegfarendur komu fljótt að henni og kölluðu til sjúkrabíl. Systir hennar segir lesendum Fréttablaðsins og Vísis sögu Margrétar í dag. Það voru engin vitni að slysinu sem varð þann 13. maí síðastliðinn. Systir mín hafði þann sama dag fengið nýtt hjól og þegar hún fór að sækja það þá gleymdi hún hjálminum í bílnum sínum. Hún hjólaði alltaf með hjálm en þennan dag var hann ekki með í för. Þetta var dagur þar sem ýmislegt var að gerast hjá henni og hún hjólaði á milli staða, eins og hún var alvön að gera," segir Lára Stefánsdóttir sem fallist hefur á að segja sögu systur sinnar, svo að hjólareiðamenn hugsi sig vandlega um áður en þeir stíga á bak reiðhjóli án þess að hafa hjálm. „Systir mín endaði daginn í mat hjá vinkonu sinni og þegar dóttir hennar hringdi í hana síðla kvölds sagðist hún vera að leggja af stað heim. Klukkutíma síðar hringdi dóttir hennar aftur og þá er símanum svarað á gjörgæsludeild Landspítalans, þangað var systir mín, Margrét Stefánsdóttir, komin eftir alvarlegt reiðhjólaslys." Lenti á gangstéttarbrúnEins og áður sagði voru engin vitni að slysinu sem varð á Skálholtsstíg, rétt ofan við Fríkirkjuveg. Margréti virðist hafa fipast við hjólreiðarnar með þeim afleiðingum að hún datt á höfuðið. „Það getur vel verið að bremsurnar á nýja hjólinu hafi komið henni á óvart, að hún hafi ekki vitað hversu snögglega hjólið myndi stöðvast þegar hún gripi í þær. Við vitum náttúrulega ekki af hverju hún bremsaði en hún skall á hægri hlið höfuðsins og lenti til allrar óhamingju á gangstéttarbrún." Margrét missti meðvitund við höggið og var flutt með sjúkrabíl á gjörgæslu Landspítalans skömmu eftir að vegfarendur sem komu á slysstað létu vita. „Það vildi henni til lífs að stuttur tími leið þar á milli. Höggið var svo harkalegt að heilinn kastaðist til. Höfuðið tók allt höggið en aðrir líkamlegir áverkar voru litlir sem engir. Við fengum að vita að það sem gæti gerst væri það að heilinn myndi bólgna upp í kjölfarið, hún fengi heilabjúg svokallaðan," segir Lára, sem segir áfall fjölskyldunnar vitaskuld hafa verið mjög mikið þegar þau fengu tíðindin um slysið. „Hún fór strax í aðgerð, höfuðkúpan var opnuð til að tappa af blóði í heilanum og í framhaldinu var henni haldið sofandi í nokkrar vikur. Líkami hennar var kældur niður og líkamsstarfssemi haldið í lágmarki til þess að draga úr heilabjúgnum sem myndaðist eftir höggið. Eigi að síður þurfti í kjölfarið að fjarlægja hluta höfuðkúpunnar í nokkrar vikur síðastliðið sumar á meðan mestu bólgurnar voru í heilanum." Á gjörgæslu í mánuðMargrét var á gjörgæslu í mánuð eftir slysið og á Landspítalanum fram í miðjan júlí. Bróðurpart þess tíma var hún meðvitundarlaus en er leið á spítaladvölina tók hún að ranka við sér og í júlí var hún flutt á Grensásdeild. Þar hefur hún dvalist síðan og notið góðrar umönnunar og þjálfunar starfsfólksins þar. „Hún fékk mikið högg á höfuðið og það hafði áhrif á starfsemi heilans, heilastofninn virðist hafa skaðast, en í gegnum hann berast öll boð til líkamans. Síðan í júlí hefur hún tekið miklum framförum þó að langt sé í land að hún verði hún sjálf. En ég hef trú á að hún komi til baka, ég get og vil ekki annað en trúa því," segir Lára sem fer oft til systur sinnar og hvetur hana áfram. „Ég tala mjög mikið við hana og gæti þess að tala við hana á sama hátt og fyrir slys. Ég hef lesið reynslusögu Jill Bolte Taylor, taugasérfræðings sem fékk heilablóðfall sem hafði þær afleiðingar að hún gat hvorki gengið, talað, lesið, skrifað né munað nokkuð úr lífi sínu. Hún var heil sjö ár að ná sér en gerði það að lokum og hefur lýst því hve hrikalegt það var þegar fólk talaði um hana eins og hún væri ekki á staðnum. Hún heyrði allt en gat ekki tjáð sig, við viljum ekki falla í þessa gryfju með Margréti." Held í voninaMargrét hefur mjög skerta hreyfigetu í dag, en er í strangri þjálfun til að bæta hana. Höggið sem Margrét fékk hefur ennfremur haft þær afleiðingar að hún missti minnið, og getuna til að tjá sig. „Starfsfólk Grensáss og við í fjölskyldu hennar erum að vinna í að þjálfa hana með markvissum hætti, sýna henni myndir og ræða málin við hana," segir Lára sem hefur ekki misst vonina um að systir hennar eigi sér góða framtíð. „Ég get ekki og vil ekki missa þá von. Slysið var auðvitað mikið áfall og stundum vill maður ekki trúa því að það hafi gerst, en þetta er staðreyndin, svona er lífið," segir Lára sem ásamt systur sinni, bróður, foreldrum og börnum Margrétar hefur fylgst vel með endurhæfingunni. „Það hafa auðvitað orðið miklar framfarir síðan í sumar, sem við erum mjög þakklát fyrir. Hún er farin að mynda sér skoðanir aftur og húmorinn, hennar sterka hlið, er í lagi og stutt í hláturinn," segir Lára og brosir. Brosið er þó fljótt að hverfa þegar talið berst aftur að slysinu sem Lára segir ljóst að hefði orðið með öðrum brag hefði systir hennar haft hjálminn á höfðinu eins og hún var vön. „Hjálmurinn hefði tekið höggið og afleiðingarnar hefðu því ekki orðið jafn alvarlegar og þær urðu," segir Lára að lokum.
Mest lesið Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Erlent Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Innlent Fleiri fréttir Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Sjá meira