Fjárveiting til HÍ í eðlilegum farvegi 9. október 2011 14:44 Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri Grænna.
Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, segir aukafjárframlög til Háskóla Íslands og framkvæmd þeirra í fullkomlega eðlilegum farvegi. Hann segir engar ákvarðanir um útgjöld til þessa máls verða teknar nema með samþykki þingsins, enda annað andstætt lögum. Eins og kunnugt er tilkynnti Jóhanna Sigurðardóttir í gær að Háskóli Íslands muni næstu fjögur árin hljóta aukafjárveitingu upp á 1,5 milljarð króna. Kristján Þór Júlíusson gagnrýndi framkvæmd málsins í hádegisfréttum RÚV á þeim forsendum að ekkert kæmi fram í frumvarpi til fjárlaga næsta árs um fjárveitinguna. Björn Valur segir vissulega rétt að útgjöldin hafi ekki komið fram í frumvarpi til fjárlaga næsta árs. Það komi hins vegar í hlut Alþingis að bæta þeim inn í fjárlögin. „Í júní síðastliðnum skipaði þingið hóp til að vinna að tillögum um hvernig framkvæmd fjárveitingar til Háskólans verði næstu ár. Sá hópur hafi skilað af sér tillögum í gær," segir Björn. „Því gat fjármálaráðuneytið eðli máls samkvæmt ekki tekið tillögurnar með í fjárlagafrumvarpið." Hins vegar er frumvarpið nú komið í meðfarir þingsins. Þingið mun því sjálft sjá um að bæta útgjöldum vegna fjárveitingarinnar inn í frumvarpið í samræmi við tillögur hópsins. Alþingi samþykkti einnig í júní að 150 milljónir króna muni renna til Háskólans á þessu ári umfram fjárlög. Þau útgjöld munu koma fram í fjáraukalögum þessa árs sem lögð verða fram í næstu viku. „Þannig er farvegur málsins allur í samræmi við fyrri ákvarðanir sjálfs þingsins," segir Björn. „Það er því útúrsnúningur hjá Kristjáni að halda því fram að fjármálaráðuneytið sé ekki að standa sig."
Tengdar fréttir Rangt staðið að styrk til Háskólans Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd gagnrýnir hvernig staðið er að fyrirhugaðri aukafjárveitingu til Háskóla Íslands. Framlögin komi ekki fram í fjárlagafrumvarpi sem aðeins er nokkurra daga gamalt. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. 9. október 2011 12:45 Mest lesið Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Erlent Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Fleiri fréttir Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Sjá meira
Rangt staðið að styrk til Háskólans Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd gagnrýnir hvernig staðið er að fyrirhugaðri aukafjárveitingu til Háskóla Íslands. Framlögin komi ekki fram í fjárlagafrumvarpi sem aðeins er nokkurra daga gamalt. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. 9. október 2011 12:45