Fótbolti

Daníel: Trúi þessu ekki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörnunnar, var hundsvekktur með að hafa tapað leiknum gegn ÍBV í kvöld á ódýru víti sem tryggði Eyjamönnum 2-1 sigur í leik liðanna í kvöld.

„Það er alltaf svekkjandi að fá á sig mjög ódýrt víti í lokin. Mér fannst við líklegri til að klára leikinn en þeir en svona er þetta bara,“

„Við gefumst aldrei upp þrátt fyrir að þeir hafi legið eitthvað á okkur. En það sem er svo svekkjandi er að hafa fengið þetta víti á okkur. Ég bara trúi því ekki. Þetta var svo lélegt víti og ég er enn að jafna mig.“

„Mér fannst dómarinn standa sig vel fram að þessu víti. En svona er þetta bara og auðvelt að svekkja sig á svona löguðu.“

„Við áttum alla vega skilið eitt stig úr þessum leik þó svo að ætluðum okkur auðvitað öll þrjú. En það þýðir bara að við verðum að vinna næst.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×