Fleiri vilja í heimilislækningar 18. ágúst 2011 09:00 Ellefu læknar hafa verið ráðnir í sérnám í heilsugæslulækningum.
Ellefu læknar hafa verið ráðnir í sérnám í heilsugæslulækningum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þeim gæti fjölgað enn frekar áður en námið hefst í lok mánaðarins því fleiri hafa sýnt því áhuga. Fyrir stunda tólf læknar sérnámið hér á landi. Alma Eir Svavarsdóttir er kennslustjóri sérnámsins. Hún er ánægð með áhugann á náminu, ekki síst vegna þess að heimilislækna hefur skort á landinu undanfarin ár. Að hennar sögn þýða fleiri formlegar stöður í sérnáminu að hægt verði að gera námið agaðra og formfastara. Aukin aðsókn þýðir hins vegar einnig að meira fjármagn þurfi til að hægt sé að sinna náminu vel. Sérnám þeirra tólf lækna sem fyrir stunda það er á vegum velferðarráðuneytisins. Nýju stöðurnar verða hins vegar fjármagnaðar af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Landspítalanum. Til þess að mæta kostnaðinum við stöðurnar var lausum stöðum sérfræðinga innan heilsugæslunnar breytt í sérnámsstöður. Sérnám í heimilislækningum hefur verið í boði hér frá árinu 1995. Í upphafi voru stöðurnar tvær. Að sögn Ölmu er það byggt upp þannig að þrjú ár af fimm séu tekin hér á landi en tvö ár erlendis. Þó hafa verið gerðar undantekningar á þessu og allt sérnámið klárað hér á landi. „Námið er orðið það gott og komin nógu mikil reynsla, svo við treystum okkur í það.“ - þeb
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira