Óttast átök við verkfallsverði 18. ágúst 2011 15:18
Samningarnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga vill forðast átök við verkfallsverði Félags leikskólakennara og beinir þeim tilmælum til sveitarfélaga að starfsemi leikskólanna verði skipulögð á þann hátt að komast megi hjá slíkum átökum. Nefndin hyggst vísa málinu til félagsdóms, verði verkfallið að veruleika. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samninganefndinni, en skoðanir nefndarinnar á því hvernig standa skuli að framkvæmd verkfallsins samrýmast ekki skoðunum Félags leikskólakennara, og sitja báðir aðilar fast við sinn keip. Í yfirlýsingunni segir að Félag leikskólakennara hafi lýst því yfir að þau komi til með að „beita öllum tiltækum ráðum til að knýja á um að farið verði eftir þeim einhliða viðmiðuarreglum sem stjórn félagsins hefur sent til stjórnenda leikskóla, komi til verkfalls." Verkfall leikskólakennara hefur verið boðað þann 22. ágúst næstkomandi, en viðræður samninganefnda Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara hafa ekki skilað árangri. Sveitarfélögin vilja manna stöður deildarstjóra með starfsmönnum utan Félags leikskólakennara ef til verkfalls kemur, en lögmaður félagsins telur að slík tilhögun mála myndi teljast verkfallsbrot. Eftir fund um framkvæmd verkfallsins sem haldinn var á hádegi í dag sagði Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, að aðilar væru „Sammála um að vera ósammála". „Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur mótmælt [...] því að stéttarfélag gefi stjórnendum sveitarfélaga bein fyrirmæli." segir í yfirlýsingunni, og er það að lokum ítrekað að samninganefndin hyggist vísa málinu til félagsdóms, ef til verkfalls kemur.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira