Innlent

Davíð og séra Halldór bestu ræðumennirnir

Davíð Oddsson var besti ræðurmaðurinn.
Davíð Oddsson var besti ræðurmaðurinn. Mynd / Valgarð
Málfundafélagið Óðinn og Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins stóðu að þessu sinni fyrir vali á ræðumanni landsfundar samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Með valinu er ætlunin að vekja athygli á ræðumennsku og hvetja fulltrúa landsfundar til að vanda til við ræðuhöld.

Allir sem tóku til máls í aðalræðupúlti fundarins voru í kjöri og gátu allir þátttakendur landsfundar kosið.

Gríðarleg spenna var í kjörinu og fengu yfir 20 aðilar atkvæði, en það fór svo að Davíð Oddsson varð hlutskarpastur og kemur líklega fáum á óvart. Þótti ræðan hæfilega löng og hnyttin.

Í öðru sæti var séra Halldór Gunnarsson en aðrir sem fengu góða kosningu voru meðal annars Geir H. Haarde, Elliði Vignisson, Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×