Kvöldganga um söguslóðir vinstrihreyfingarinnar 21. júlí 2011 14:56 Hjónin Guðrún Ágústsdóttir og Svavar Gestsson.
Hjónin Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir fara fyrir göngu í kvöld um söguslóðir vinstrihreyfingarinnar í Reykjavík þar sem gengið verður að tilteknum húsum í miðborginni. Meðal þeirra eru Alþýðuhúsið við Vonarstræti og Vinaminni. Um er að ræða kvöldgöngur sem skipulagðar eru af Ljósmynda-, Borgarbóka-, Lista-, og Minjasafni Reykjavíkur. Gengið verður meðal annars að Alþýðuhúsinu þar sem verkalýðssamtök, Alþýðuflokkur og Alþýðublaðið voru til húsa. Þá verður saga Þjóðviljans rakin en blaðið var við Skólavörðustíg 19 í áratugi, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Svavar ritsýrði blaðinu á árunum 1971-1978. „Litið síðan á hús Máls og menningar. Einnig verður gengið að Fjalakettinum en þar var Bröttugötusalurinn þar sem Kommúnistaflokkur Íslands hélt marga fundi sína. Litið verður við í Vinaminni við Mjóstræti þar sem Samtök hernámsandstæðinga höfðu skrifstofur um skeið. Þá verður endað í Tjarnagötu 20 þar sem Sósíalistaflokkurinn var lengi til húsa. Á leiðinni þangað verður talað um Bárubúð sem stóð þar sem ráðhúsið er,“ segir á vef Reykjavíkurborgar. Svavar er fyrrverandi þingmaður og ráðherra auk þess sem hann var formaður Alþýðubandalagsins á árunum 1980-1987. Guðrún er fyrrverandi borgarfulltrúi og formaður borgarstjórnar. Lagt verður af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17, klukkan 20 í kvöld. Fram kemur á vef borgarinnar að allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira