Nýtt norskt olíuævintýri 1. október 2011 23:00 Verðmæti undir sjávarbotni Olíufélög hafa fundið ríkar olíulindir í Norðursjó. Heildarverðmæti undir nýju svæði nemur samsvarandi upphæð og hálfur olíusjóður Norðmanna. NordicPhotos/AFP „
Nú erum við komnir með lykilinn að svæðinu og þurfum bara að halda áfram." Þetta sagði Ashley Heppenstall, forstjóri olíufyrirtækisins Lundin í samtali við fjölmiðla í gær, eftir að rannsóknir fyrirtækisins leiddu í ljós að margfalt meiri olíu má vinna úr svæðinu en talið hafði verið. Fyrra mat gaf til kynna að þar mætti vinna 100 til 400 milljónir tunna af olíu, en nýjar rannsóknir gefa til kynna að þar gætu legið á milli 800 og 1800 milljónir tunna. Í frétt Dagens Næringsliv segir að ríkisolíufélagið Statoil hafi einnig fundið gnægð af olíu á sama svæði og má samtals gera ráð fyrir allt að 2.600 milljónum tunna á svæðinu sem væri þá þriðja stærsta olíulind á norska landgrunninu. Miðað við gengi gjaldmiðla og heimsmarkaðsverð á olíu væri heildarverðmæti olíunnar allt að 1.580 milljarðar norskra króna sem jafngildir helmingi af núverandi stöðu norska olíusjóðsins. Það sem gerir fréttirnar enn betri fyrir Norðmenn er að lindin er á afar heppilegu svæði þar sem uppbygging ætti að taka skjótan tíma. Miðað við áætlanir Lundin má gera ráð fyrir að vinnslukostnaður á svæðinu verði töluvert minni en á öðrum svæðum á norska landgrunninu þar sem uppbygging á sér stað. Líklega mun kostnaðurinn við hvern olíulítra verða um 10 Bandaríkjadalir á hverja tunnu, en á öðrum rannsóknarsvæðum gæti samsvarandi kostnaður numið 40 til 60 dölum. Þrátt fyrir þessa miklu bjartsýni trúa Lundin-menn að enn muni rætast úr. Heppenstall sagðist þess fullviss að leitarteymi fyrirtækisins hitti aftur í mark og Hans Christen Rönnevik, leitarstjóri tekur í sama streng. „Við munum bora þrjár holur á sama svæði næsta ár, og það mun koma mér verulega óvart ef við smellhittum ekki í að minnsta kosti tveimur þeirra." thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Innlent „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Erlent Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Erlent Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Innlent „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Innlent Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Innlent Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Innlent Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn Innlent Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Innlent Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Innlent Fleiri fréttir Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Tóku enn eitt skipið Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Kennir Selenskí enn og aftur um Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Witkoff segir annan áfanga friðaráætlunarinnar hafinn Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Sjá meira